Skoðun

Tekur fólk ekki rökum?

Einar K. Guðfinnsson skrifar
Hér á landi draga nánast engir í efa að veiðar á hvalategundunum langreyði og hrefnu megi stunda með sjálfbærum hætti. Við höfum upplýsingar frá Hafrannsóknastofnun sem sýna þetta og Alþjóðahvalveiðiráðið hefur staðfest stofnstærðarmatið. Þetta kom skýrt fram í viðtali Fréttablaðsins sl. sunnudag við Greg Donovan formann Vísindanefndar Alþjóðahvalveiðiráðsins.

Óumdeilt er það einnig að við höfum allar heimildir til þess að þjóðarrétti að veiða þessa hvalastofna. Fyrirvarar sem við settum við inngöngu í Alþjóðahvalveiðiráðið eru nú að fullu komnir í gildi. Sjálfsákvörðunarréttur okkur er því ótvíræður.

Dapurlegt er hins vegar til þess að hugsa þegar því er haldið fram að þessi réttur okkur skuli undirorpinn afstöðu óskilgreinds almenningsálits í ótilgreindum löndum. Það gerist þegar menn segja að vísindarökin og þjóðréttarrökin skipti engu máli og að við verðum að gefast upp fyrir mótmælum í útlöndum (- sem eru þó ekki mjög alvarleg).

Slíkur málflutningur hlýtur að vekja upp spurningar um stöðu okkar sem fullvalda þjóðar í heimi sem byggir á lögum, reglum og stofnanafyrirkomulagi í alþjóðlegum samskiptum. Ekkert slíkt fyrirkomulag er til staðar við aðstæður þar sem viðurkennt er að réttur okkur lúti óskilgreindum og óskilgreinanlegum ákvörðunum hins hvikula almenningsálits og hugtaksins ímyndar í erlendum ríkjum.

Værum við í Evrópusambandinu hefðum við þó reglur, dómstóla og lög við að styðjast. Ef við ofurseldum okkur valdi hagsmunasamtaka úti í heimi væri fullveldisréttur fljótlega aðallega orðin tóm. Þessi rök mjög margra þeirra sem tala gegn hvalveiðum (leiðarar Morgunblaðsins eru gott dæmi um þetta) eru þess vegna sorgleg.

Og svo er það annað. Gagnrýnendur hvalveiða hérlendis hafa sumir hverjir sagt að þótt rétturinn sé okkar megin þá dugi engin rök á þá sem eru andvígir hvalveiðum okkar t.d. erlendis. Afstaða fólks ráðist af öðru. Getur þetta verið? Er ekki orðræðan og skoðanaskiptin einmitt kjarni lýðræðisins? Hvað gerist þegar við föllumst á að umræðan skipti engu máli? Við erum þá að segja að við getum ekki unnið málstað okkar fylgi með skoðanaskiptum og röksemdafærslum.

Tvennt má um þetta segja. Annars vegar er þetta dæmi um ótrúlegan hroka, þar sem bókstaflega er verið að segja að fólk taki ekki rökum. Hins vegar er þetta ávísun á röksemdafærslu þeirra sem ekki viðurkenna grundvöll lýðræðislegs fyrirkomulags. Hætt er við að slík röksemdafærsla færi okkur fljótlega inn á háskalegri brautir en svo, að ég kæri mig einu sinni um að hugsa það til enda.

Eigum við því ekki að sameinast um að sjálfsákvörðunarrétturinn sé okkar og trúa því að fólk taki rökum. Annars er stutt í að sjálfsmynd þjóðarinnar verði býsna óskýr og röksemdafærsla lýðræðisfjenda taki öll völd.

Höfundur er sjávarútvegsráðherra.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×