Skoðun

Við sáum að hver króna skipti máli

Fyrir rúmu ári fórum við vinkonurnar til Úganda í A-Afríku til að taka þátt í verkefni sem Hjálparstarf kirkjunnar hefur stutt þar í landi í nokkur ár. Markmið verkefnisins er að aðstoða þá sem alnæmisfaraldurinn hefur snert á einn eða annan hátt. Stór hluti þeirrar aðstoðar felst í að veita fólki aðgang að hreinu vatni og auðvelda því þannig að takast á við sérhvern dag.

Drekka vatn úr vatnsbólum dýra

Á meðan á dvöl okkar stóð kynntumst við þeirri miklu örbirgð sem fólkið bjó við og urðum við vitni að því hvað hægt er að gera mikið gagn fyrir litla peninga á okkar mælikvarða. Í gegnum starf samstarfsaðila Hjálparstarfsins í Rakaí-héraði kynntumst við fjölda munaðarlausra barna.

Þau þurftu að bjarga sér um allt sjálf og á hverjum degi þurftu börnin að ganga berfætt marga kílómetra til að sækja vatn í óhrein vatnsból sem skepnurnar drukku líka úr. Þetta var því mikil erfiðisvinna auk þess sem börnin töpuðu miklum tíma frá ræktun eða vinnu fyrir nauðsynjum og launin því miður óheilsusamlegt vatn.

Vatnstankur við húsið

Það var mikill munur að kynnast svo þeim börnum sem komin voru inn í verkefni hjálparstarfsins á þessu svæði. Þau höfðu fengið fullorðinn umsjónarmann og ýmsa efnisaðstoð. Mörg höfðu fengið almennileg hús með stóran vatnstank við hliðina þar sem hægt var að safna rigningarvatni af þökum húsanna.

Vatnstankurinn sparaði tíma og breytti öllu fyrir börnin til að halda heilsu og geta framfleytt sér. Ekki hafa öll munaðarlausu börnin fengið vatnstank við hús sín en mörg þeirra hafa nú aðgang að vatnsbrunnum sem Hjálparstarf kirkjunnar hefur víða látið grafa. Heilnæmt vatn er grunnurinn að öllu öðru.

Öll framlög nýtast – stór og smá

Jólasöfnun Hjálparstarfs kirkjunnar í ár líkt og í fyrra er helguð þessu þarfa verkefni. Í fyrra söfnuðust um 32 milljónir í jólasöfnunni og hafa 266 brunnar verið gerðir fyrir þá peninga en þeir geta veitt 266 þúsund manns aðgang að hreinu vatni. Þessar tölur segja þó ekki alla söguna. Með betri heilsu getur fólk betur séð fyrir sér sjálft.

Og það er markmiðið þarna - að hjálpa til sjálfshjálpar. Þörfin er þó enn til staðar og inn á öll heimili í landinu hefur nú verið dreift gíróseðlum að upphæð 2.500 krónum. Okkur er ljóst að ekki hafa allir tök á að greiða þá upphæð og því viljum við benda fólki á að líka er hægt að hringja í söfnunarsímann 907 2002 og gefa þá 1.100 kr. sem skuldfærast beint á símreikning notanda. Við sáum að hver króna skiptir máli!




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×