Matur

Kartöfluréttur Bubba og speltbrauð

Kartöfluréttur Bubba

Kartöflur og gulrætur soðnar.

Beikonið skorið í litla bita og steikt á pönnu. Laukurinn skorinn smátt og léttsteiktur á pönnunni sér.

Þegar kartöflur og gulrætur eru soðnar eru þær þerraðar og settar í skál og stappaðar saman. Síðan er beikonið sett útí og laukurinn.

Svo er smjörið einnig sett útí. Allt stappað saman. Kryddað með svörtum pipar og síðan sett í ofnfast fat og í ofninn í nokkrar mínútur.

Berið síðan fram með þessu gufusoðna grænmetið og setjið á það smá smjör (má einnig nota góða olíu) og sjávarsalt, t.d. Maldon salt.

Kartöflur
Bökunarkartöflur
Gulrætur
Smjör
Rauðlaukur
Beikon
Svartur pipar

 

Gufusoðið grænmeti

Blómkál
Ferskur aspas
Spergilkál
Maldon sjávarsalt

 

Speltbrauð

Þurrefnunum er öllum blandað saman í skál. AB mjólkinni og heita vatninu hellt út í og blandað varlega saman við þurrefnin.

Síðan eru sólblómafræin og kúmenið (má einnig setja smá salt ef vill) sett út í og öllu blandað varlega áfram saman. Deigið er síðan sett í smurt brauðform og bakað í 25-30 mínútur við 200 gráðu C.

Bubbi setur svo iðulega aðrar kryddtegundir í brauðið þegar hann vill breyta til. Hrærið sem minnst í deiginu því þá verður brauðið létt í sér. Mjög gott er að rista brauðið næstu daga á eftir. Það er að segja ef það er bakað í brauðformi en ekki bolluformi eins og Bubbi gerir að þessu sinni.

Bubbi mælir svo með íslenska smjörinu á heitar bollurnar og smá sjávarsalt og það er algjört sælgæti. 

5dl Lífrænt grófmalað spelt
1dl. sólblómafræ, sesamfræ eða kókósmjöl
3tsk. vínsteinslyftiduft
1/2-1 tsk. sjávarsalt
1og1/2-2 dl. ab mjólk eða sojamjólk
1og1/2-2 dl. sjóðandi heitt vatn







×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.