Skoðun

Pólitískt óvit

Þorsteinn Pálsson skrifar

Þegar Samfylkingin gekk inn í núverandi stjórnarsamstarf hafði hún á vissan hátt tekið fyrri stöðu Framsóknarflokksins sem fólst í því að geta samið af nokkrum styrk til beggja handa. Í ljósi reynslunnar var því rökrétt að álykta á þá leið að vinstri vængur Samfylkingarinnar væri líklegur til að ókyrrast á úthallandi kjörtímabili. Það gerðist gjarnan með stuðningsmenn Framsóknarflokksins þegar hann var af sömu stærð. Þetta á eftir að koma í ljós.

Nú þegar ríkisstjórnarsamstarfið er rétt rúmlega ársgamalt er það á hinn bóginn svo að formaður Sjálfstæðisflokksins sætir talsverðri gagnrýni innanbúðar fyrir að hafa gengið til samstarfs við Samfylkinguna. Reyndar bar lítið eitt á slíkri gagnrýni við upphaf samstarfsins. Á hinn bóginn hefur ekki enn komið upp á yfirborðið samskonar innri gagnrýni á formann Samfylkingarinnar fyrir að verja stjórnarforystu Sjálfstæðisflokksins. Þetta er um margt athygli vert í sögulegu samhengi.

Gagnrýnin á formann Sjálfstæðisflokksins er reist á þeirri röksemdafærslu að stjórnarsamstarfið hafi bjargað pólitísku lífi formanns Samfylkingarinnar og fyrir vikið blómstri bæði formaðurinn og flokkurinn í skoðanakönnunum. Rétt er að Samfylkingin hefur bætt sig í síðustu skoðanakönnunum meðan samstarfsflokkurinn hefur dalað. En eru þetta gild pólitísk rök gegn stjórnarsamstarfi?

Segja má að pólitík sé blanda af þremur gildum: Persónum, völdum og málefnum. Gagnrýni af þessum toga er algjörlega blind á málefni. Pólitísk umræða á þeim forsendum getur ekki leitt til skynsamlegrar niðurstöðu. Síst af öllu er unnt að loka augunum fyrir málefnagildunum þegar fjármálamarkaðurinn er í jafn miklu uppnámi og raunin er.

Eftir síðustu kosningar var samstarf Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks óráð af tveimur ástæðum: Annars vegar var þingmeirihlutinn tæpur. Hins vegar var skynsamlegt að líta svo á að valda- og málefnagerjunin innan Framsóknarflokksins ætti fremur að fá útrás innan hans en á vettvangi ríkisstjórnarinnar.

Málefnagjáin milli Sjálfstæðisflokks og VG hefði kallað á að stjórnarsáttmáli þeirra bæri yfirskriftina: Það sem ekki má gera. Þar hefði þurft að njörva niður að ekki mætti koma á nýju kerfi sjúkratrygginga, ekki yrðu leyfðir fleiri sjálfstæðir skólar, ráðstafanir til að tryggja öryggi landsins væru óheimilar á kjörtímabilinu og hagvöxtur með orkufrekum nýiðnaði skyldi stöðvaður. Slíkur sáttmáli hefði verið of dýru verði keyptur.

Evrópumálin eru trúlega vafningasamasta mál Sjálfstæðisflokksins eins og sakir standa. Stjórnarsáttmálinn bindur hins vegar Samfylkinguna við stefnu Sjálfstæðisflokksins í þessum efnum. Um skynsemi þess ákvæðis má deila. En á móti því verður ekki mælt að það gefur Sjálfstæðisflokknum alltént meira rými til að glíma við málið á sama tíma og ríflega helmingur kjósenda hans styður aðildarviðræður í könnunum.

Að öllu þessu virtu væri við ríkjandi aðstæður pólitískt áhættusamara til framtíðar litið fyrir Sjálfstæðisflokkinn að hafa Samfylkinguna lausbeislaða í stjórnarandstöðu. Ljóst er því að innanbúðargagnrýnin á formann Sjálfstæðisflokksins fyrir samstarfið við Samfylkinguna á rætur í einhverju öðru en pólitísku viti.








Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×