Matur

Villigæs með trönuberjasósu

Uppskrift af Nóatún.is

Fyrir: 4

Villigæs með trönuberjasósu

1 villigæs

Salt og pipar

Stráið salti og pipar á gæsina og setjið í 210° heitan ofn í 10 mínútur. Lækkið ofnhitann í 140° og hafið ofninn opinn í smá stund til að leyfa mesta hitanum að rjúka úr ofninum, steikið áfram í 60 mínútur. Berið fram með eplasalati, rauðvínssoðnum perum og smjörsteiktum soðnum kartöflum.

Trönuberjasósa

1 msk smjör

50 g grænmeti (sellerírót, nípa, gulrætur, skallotlaukur, blaðlaukur)

100 ml trönuberjasafi

400 ml villibráðarsoð

2 tsk sykur

2 msk kartöflumjöl

Skvetta af rauðvíni

Nýmalaður hvítur pipar

Sjávarsalt

Léttsteikið fínskorna grænmetið í smjöri á pönnu. Bætið trönuberjasafa, soði og sykri saman við og látið malla í um 20 mínútur. Sigtið sósuna og þykkið með kartöflumjöli, leysið upp í rauðvíni. Látið malla í 5 mín.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.