Skoðun

Tekjutengjum sjómannaafsláttinn

Frá því er greint í fréttum Ríkisútvarpsins 25.11.2009 að dæmi séu um að hásetahlutur á fjölveiðiskipum sem svo eru nefnd geti farið í 30 milljónir króna á ári. Jafnframt er tekið fram að gjarnan séu 2 menn um hvert pláss á slíkum skipum. Árslaun einstakra starfsmanna á fjölveiðiskipi geta þá rokkað á milli 15 og 35-40 milljóna króna eftir því hvort um háseta eða yfirmann er að ræða. Með öðrum orðum: Tekjur þessara aðila sveiflast frá því að vera rífleg forsætisráðherralaun og yfir í það að losa laun forsætisráðherra og 2ja óbreyttra þingmanna að auki! En þar með er ekki allt talið því almenningur leggur sérhverjum einstaklingi í þessum hópi til 100 til 200 þúsund krónur á ári í formi skattafsláttar, sjómannaafsláttarins. Ríkisskattstjóri upplýsir að heildarkostnaður ríkissjóðs vegna sjómannaafsláttarins nemi um 1,1 milljarði króna.

Ég benti á það í sjónvarpsviðtali fyrir nokkru að þrátt fyrir umfangsmikinn niðurskurð og umfangsmiklar skattahækkanir virðist svo vera sem sjómenn eigi enn að fá að njóta þeirrar sérstöðu sem í skattafslættinum felst. Viðbrögð við þessum orðum mínum létu ekki á sér standa. Sjómenn töldu sig ekki ofsæla af sínum kjörum. Látum kjurt liggja þó margir sem í landi eru vildu gjarnan hafa vistaskipti við fjölveiðiskipshásetana sem sagt er frá hér að ofan. Fallast má á að afkoman sé ekki jafn glæsileg hjá öllum sjómönnum og hún er hjá þeim fríða flokki sem fyllir skipsrúm fjölveiðiskipanna. En það er leikur einn að gera vel við tekjulága sjómenn annars vegar og leyfa þeim tekjuhærri að greiða skatta eins og fullorðnir menn. Það má gera með því að tekjutengja sjómannaafsláttinn rétt eins og gert er með barnabætur og vaxtabætur. Til dæmis mætti haga málum þannig að sjómaður með fjórðung úr forsætisráðherralaunum á ári eða minna fengi fullan afslátt en að sá sem væri með hálf forsætisráðherralaun á ári eða meira fengi engan og þeir sem væru með laun þar á milli fengju skertan afslátt í hlutfalli við laun umfram fjórðung forsætisráðherralauna. Nota mætti hluta þeirra fjármuna sem þannig spöruðust til að draga úr fyrirhugaðri skerðingu á greiðslum úr fæðingarorlofssjóði.

Höfundur er prófessor við hagfræðideild Háskóla Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×