Skoðun

Þjóðin á listaverkin í bönkunum

Svavar Gestsson skrifar
Þegar bankarnir voru einkavæddir fengu kaupendur þeirra mörg hlunnindin fyrir ekki neitt. Þetta gerðist reyndar ekki aðeins með bankana. Þannig er sagt að Sementsverksmiðja ríkisins hafi átt jörð sem fylgdi þegar verksmiðjan var einkavædd. Fyrsta verk hinna nýju eigenda var að hluta jörðina niður í sumarbústaðalönd og selja. Andvirði sumarbústaðalóðanna á að hafa dugað fyrir því sem borgað var fyrir verksmiðjuna. Þannig æddi einkavæðingin áfram eins og skriðdrekar í stríði eða eins og engisprettuher. Einkavæðingin skeytti hvorki um skömm né heiður. Svo mikið lá á að koma eignunum án hirðis í hendur græðginnar að aldrei var spurt um neitt annað en debet og kredit og illa það eins og fram kemur í skýrslu rannsóknarnefndarinnar.

Þegar bankarnir voru einkavæddir fylgdu þeim hundruð listaverka og þau voru ekki metin á einseyring við sölu bankanna. Þjóðin átti reyndar listaverkin í raun því hún átti bankana. Það var ekkert tekið fram um listaverkin sérstaklega. Það var og er bannað að láta af hendi eigur ríkisins nema með sérstökum lögum. Það er því hægt að halda því fram að ríkið eigi verkin af því að þau hafi ekki verið látið af hendi með löglegum hætti.

Þess vegna er allt annað fráleitt en það að ríkið eignist verkin núna og að líta ber þannig á að ríkið, það er þjóðin, eigi verkin. Skilanefndirnar eru engar listaverkasjoppur. Þjóðin á verkin. Eðlilegast væri að Listasafn Íslands tæki öll verkin undir sína umsjá. Síðan á Listasafn Íslands að taka það af verkunum sem safnið þarf til þess að tryggja heildaryfirsýn yfir íslenska myndlist. Það sem þá er eftir á að selja á uppboði til ágóða fyrir íslenska myndlist. Þetta er svona einfalt. Það er fáránlegt að taka öðru vísi á málinu. Nú hefur menntamálaráðherra tryggt ríkinu forgangsaðgang að verkum þessum í sjö ár. Það er frábært. Þau sjö ár á að nota til þess að merkja þjóðinni þessi verk.

Auk þess er það því miður svo að verk þessi í svo stórum stíl geta ekki skipt sköpum fyrir afkomu kröfuhafanna sem sagðir eru eiga bankanna. Og ef í nauðir rekur má taka verkin eignarnámi með lögum í þágu þjóðarinnar. Það hefur áður verið gert; Hótel Borg var tekin eignarnámi á stríðsárunum. Við höfum átt í efnahagslegu stríði. Rökin eru þau sömu nú og þá.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×