Skoðun

Vegna umræðu um fjármuni sem eftir stóðu við sölu Lánasjóðs landbúnaðarins

Guðni Ágústsson skrifar
Þegar sala Lánasjóðs landbúnaðarins var ákveðin, var Einkavæðingar-nefnd falið að annast undirbúning og framkvæmd útboðs og sölu á eignum og skuldum Lánasjóðsins. Ríkisstjórnin ákvað með samþykki Alþingis í fjárlögum að verja andvirði sölunnar til að styrkja Lífeyrissjóð bænda. Landsbankinn skilaði inn hæsta tilboðinu uppá 2,6 milljarða og greiddi Landsbankinn þá upphæð inní Lífeyrissjóð bænda. Frá þessu er gengið 4. okt. 2005 þar með yfirtók Landsbankinn tilgreindar eignir og skuldir LL.

Í samningnum kemur fram að yfirteknar eignir voru útlán í formi skuldabréfa og kröfur samkvæmt hlutdeildarskírteinum í innlendum fjárfestingarsjóðum. Jafnframt var tekið fram að, aðrar eignir Lánasjóðs landbúnaðarins fylgdu ekki með í kaupunum. Á grundvelli þessarar yfirlýsingar um aðrar eignir gaf Ríkisstjórnin undirrituðum sem Landbúnaðarráðherra, heimild til að styrkja byggingu reiðhalla reiðskemma og reiðskála í samráði við Hestamannafélög innan Landssambands hestamanna víðsvegar um landið.

Á fjáraukalögum fyrir árið 2006 var farið fram á 330 milljónir króna til að styrkja slíkar byggingar, þessi tillaga var samþykkt á Alþingi. Þar kom fram að framlagið yrði fjármagnað með fjármunum sem stóðu eftir við sölu og niðurlagningu Lánasjóðs landbúnaðarins en voru ekki hluti af söluandvirði sjóðsins. Í framhaldinu var rætt við mig sem Landbúnaðar-ráðherra um að upphæðin í peningum sem til ráðstöfunar var, væri 214 milljónir auk eigna í þremur jörðum sem enn væri óvíst hverju skiluðu í sölu.

Í framhaldinu var tekin ákvörðun um að ávaxta þessa fjármuni í bankavíxlum hjá Kaupþingsbanka hf . Sem á þeim tíma var talin mjög örugg fjárfesting og ávöxtunarleið. Reiðhallarstyrkirnir hafa verið greiddir út úr fjárlögum eftir gangi mála við byggingu þeirra og eru þær flestar komnar upp eða á lokastigi.

Við fall bankanna og Kaupþingsbanka haustið 2008 breyttist hin peningalega eign sem stóð á bakvið ákvörðun Ríkisendurskoðunnar um fjármögnun reiðhallanna í almenna kröfu í þrotabúi Kaupþingsbankans. Með kröfulýsingu var gerð krafa um að umræddir fjármunir yrðu greiddir Sjávarútvegs- og landbúnaðar-ráðuneytinu f.h. Lánasjóðs landbúnaðarins sem almenn krafa.

Nú liggur fyrir að umrædd krafa hefur fengist með bréfi 29. okt 2010 samþykkt úr þrotabúi Kaupþingsbanka sem almenn krafa. Ekki liggur enn fyrir hversu mikið fæst uppí kröfuna, vonandi sem mest. Ég lauk störfum sem Landbúnaðarráðherra í maí 2007 þá var þessi sjóður í góðri ávöxtun og enginn, ekki Ríkisendurskoðun né Fjármálaráðuneytið höfðu gert athugasemdir við ávöxtun þessara peninga sem urðu grundvöllur þess að 28 reiðhallir íþróttahús hestamanna eru nú risin eða að rísa um allt land.

Ég átti gott samstarf við Ríkisendurskoðun í minni ráðherratíð og fór gjarnan að þeirra tillögum og leitaði til stofnunarinnar oft í málum sem voru erfið viðfangs. Ég geri enga athugasemd við umfjöllun Ríkis-endurskoðunar af þessu tilefni.

Reykjavík 7. des. 2010

Guðni Ágústsson fyrrv. Landbúnaðarráðherra

 




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×