Skoðun

Þórunn Sveinbjarnardóttir: Akstur í boði SORPU

Þórunn Sveinbjarnardóttir skrifar
Sveitarfélögin sjö á höfuðborgarsvæðinu stofnuðu SORPU fyrir tæplega 20 árum. Á sínum tíma var stofnun byggðasamlagsins mikið framfaraskref í þjónustu við íbúa höfuðborgarsvæðisins. Loksins var fólki - fyrirtækjum og heimilum - gefinn kostur á því að flokka og endurvinna úrgang en slíka þjónustu höfðu mörg Evrópulönd þá boðið árum saman. Enda var SORPU vel tekið og fólk almennt séð duglegt að tileinka sér kosti flokkunar og endurvinnslu með jákvæðum umhverfisáhrifum og virðisauka fyrir samfélagið allt.

En nú er öldin önnur og kröfur meiri og strangari, ekki síst til fyrirtækja. Fyrir þau borgar sig að flokka sem mest og minnka umfang úrgangs. Hið sama á því miður ekki við um heimilin á höfuðborgarsvæðinu. Þeir sem vilja gera betur og flokka í bláar og grænar tunnur (sem sum sveitarfélaganna bjóða) þurfa að greiða meira en þeir sem henda öllu sínu drasli í svörtu tunnuna. Eða menn aka í næstu endurvinnslustöð til að skila flokkuðum úrgangi. Vissulega eru grenndargámar víða en betur má ef duga skal. Í heimabæ mínum, Garðabæ, eru grenndargámar á einum stað í tíu þúsund manna sveitarfélagi. Engin endurvinnslustöð er í bænum lengur. Hún hefur verið flutt til Hafnarfjarðar og akstur í hana að minnsta kosti tvöfaldast með tilheyrandi tilkostnaði. Þetta verður að teljast öfugþróun og í hrópandi ósamræmi við markmið hins opinbera um að draga úr urðun úrgangs.

Á kosningavori hefði mátt búast við því að frambjóðendur allra stjórnmálaflokka berðust um hylli kjósenda meðal annars með því að bjóða betri þjónustu við sorphirðu og endurvinnslu, en ekki með því að lengja vegalengdir og flækja líf þeirra sem þó leggja sig fram við flokkun og endurvinnslu.

Það hlýtur að vera verðugt verkefni frambjóðenda til sveitarstjórna að bjóða íbúum Garðabæjar, Kópavogs, Hafnar­fjarðar, Álftaness, Seltjarnarness og Reykjavíkur þjónustu á þessu sviði sem er hvort tveggja í senn; í takt við tímann og verðlögð með tilliti til markmiða umhverfisverndar og sjálfbærrar þróunar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×