Matur

Vanillukrem með rjóma, rifnum marengs og ávöxtum

Vanillukrem með rjóma, rifnum marengs og ferskri ávaxtablöndu.
Vanillukrem með rjóma, rifnum marengs og ferskri ávaxtablöndu. Mynd/Anton Brink

Sigurður Ívar Sigurðsson, kokkur á Nauthóli Bistro, töfrar fram girnilega uppskrift að vanillukremi með rjóma, rifnum marengs og ferskri ávaxtablöndu fyrir sex manns.



Vanillukrem

Fyrir sex

½ l mjólk

1 vanillustöng

125 g sykur

125 g eggjarauður

25 g maísenamjöl

100 ml rjómi, léttþeyttur

Þeytið eggjarauðurnar léttar og ljósar, bætið sykrinum og maísmjöli út í og þeytið vel saman. Sjóðið saman mjólkina og vanillustöngina í potti og fáið suðuna upp. Hellið mjólkinni hægt saman við eggjablönduna og hrærið á meðan. Setjið svo allt aftur í pott og hitið þar til blandan fer að þykkna. Látið kólna. Blandið saman við léttþeyttan rjóma.

Marengs

150 g púðursykur

90 g eggjahvítur

Stífþeytið eggjahvíturnar og púðursykurinn, smyrjið í hring á bökunarplötu og bakið við 120°C í 1 klukkustund, slökkvið þá á ofninum og látið standa í ofninum í klukkutíma í viðbót. Takið marengsinn út og kælið. Þá er hann tilbúinn og má rífa yfir vanillukremið.

Ávextir yfir:

1 bolli fersk jarðarber, skorin niður

½ fersk mynta, söxuð

börkur af ½ sítrónu eða lime, rifinn

Blandið saman og hellið yfir.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.