Skoðun

Vertu öðlingur

Darri Johansen skrifar
Ég var, líkt og margir karlmenn grunar mig, frekar dofinn þegar kom að jafnréttismálum. Ég varð var við umræðuna, baráttuna, en það var aldrei mín barátta, ekki beint. En flott hjá þessum stelpum að vekja athygli á þessu. Vel gert og það allt. Undanfarin ár hef ég kynnt mér þessi mál betur. Ég hef ekki kafað ofan í efnið eða tekið beinan þátt í umræðum - en ég hef fylgst með, opnað hugann fyrir þessum málum og viðurkennt misréttið þegar það blasir við.

Fyrir mér er jafnrétti jafn sjálfsagður hlutur og skýin á himni og er viss um að flestir af mínum vinum eru mér sammála. Margir karlmenn hafa því hugsanlega ekki alltaf skynjað vandann. Þetta er ef til vill ekki óeðlilegt því misréttið er ekki alltaf á torg borið heldur marar stundum undir niðri, er ekki sýnilegt nema vel sé að gáð. Það er að finna í viðhorfum, í tíðarandanum sem er ósnertanlegur, í húmor og gríni sem má ekki taka alvarlega eða í orðræðunni - í orðum sem liggja milli lína.

Kynbundið misrétti er þannig hluti af menningu okkar en er þó ekki órjúfanlegur hluti hennar. Það er nefnilega vel hægt að rjúfa misréttið frá menningunni. Engu að síður er það enn til staðar að einhverju leyti og það birtist víða. Í hatursbréfum til kvenna sem þora að sigla á móti straumnum, afdrifum nauðgunarmála í dómskerfinu og kynbundnum launamun. Svo dæmi séu tekin.

Við erum ekki öll sérfræðingar þegar kemur að málum er varða jafnrétti; kynbundnu misrétti eða jafnvel ofbeldi. En það er allt í lagi, við getum ekki öll háð baráttuna í fremstu víglínu. Engu að síður höfum við öll mikilvægu hlutverki að gegna. Hlutverk okkar hinna er að hlusta, taka mark - og láta okkur málin varða. Bregðast við. Við ættum öll að taka umræðuna alvarlega og taka dæmin sem eru teiknuð upp fyrir okkur trúanleg.

Það er okkar sameiginlega skylda. Því jafnrétti er í raun ekki til staðar nema bæði karlar og konur beiti sér fyrir því að það viðhaldist. Fyrr verður því ekki náð.

Taktu þátt. Vertu öðlingur. Þátttaka getur verið vakning í sjálfu sér.

 



+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.








Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×