Skoðun

Jafnrétti í raun....

Sigurður Magnússon skrifar
Á Íslandi ríkir jafnrétti. Lög um jafna stöðu og jafnan rétt, lög um launajöfnuð kvenna og karla kveða á um það. Þetta köllum við formlegt jafnrétti.

En teygir það anga sína inn í nærumhverfi okkar, heimilið, skólann, vinnustaðinn? Í nýútkominni skýrslu frá norrænu ráðherranefndinni kemur fram að þrátt fyrir aukna þátttöku kvenna á vinnumarkaði hér á landi væri meginábyrgðin á heimilisstörfum og líðan stórfjölskyldunnar almennt enn á herðum kvenna. Konur eru því almennt undir miklu álagi varðandi samhæfingu fjölskyldu og atvinnulífs.

Dæmi voru um að íslenskar konur sem tóku þátt í rýnihópum í skýrslunni hafi einnig borið ábyrgð á öldruðum foreldrum og jafnvel verið beðnar um að aðstoða einhleypa bræður sína við heimilisþrif. Annað dæmi var um einstæða móður sem fékk ekki vinnu vegna þess að hún átti ekki foreldra álífi né systur sem gæti hlaupið undir bagga með henni í veikindum barnsins. Hún átti hinsvegar tvo bræður, en það virtist einu gilda í þessu sambandi.

Á vinnumarkaði virðist viðvarandi launamunur og ríkjandi viðhorf atvinnurekanda viðhalda hefðbundnum staðalmyndum kynjanna, samkvæmt skýrslunni. Það hefði síðan áhrif á stöðu kvenna inni á heimilunum þar sem karla þættu ómissandi starfskraftur í fyrirtækjunum og vinnan gengi því fyrir fjölskylduábyrgð. Forsenda jafnréttis á vinnumarkaði hlýtur því að vera sameiginleg ábyrgð foreldra á ummönnun barna og jöfn þátttaka í rekstri heimilisins.

Ein skýrasta birtingarmynd þess hve litið er upp til feðraveldisins í þessu sambandi er hvernig samfélagið hefur talað upp karlanna t.d. hvað varðar fæðingarorlofið, á sama tíma og konur eru talaðar niður þegar kemur að jöfnum rétti kynjanna. Körlum er hrósað fyrir aukna þátttöku í fjölskyldulífi og ummönnun barna sinna á meðan konum er legið á hálsi að nýta ekki allt fæðingarorlof eða fara of fljótt aftur út á vinnumarkaðinn. Enn og aftur græða karlar á umræðunni um jafnréttismál, sem á að vera hagsmunamál beggja kynja. Auka þarf hlut karla inni á heimilum - og hlut kvenna utan þeirra, báðum í hag.

Þegar við lítum á stjórnsýsluna blasir við okkur misréttið hvert sem litið er. Konur eru í miklum minnihluta í áhrifastöðum og hlutfall kvenna í nefndum og ráðum er í flestum tilfellum lægra en hlutfall karla, þrátt fyrir endurskoðun jafnstöðulaganna frá 2008. Þetta á líka við í stjórnum fyrirtækja og félagasamtaka. Samt eru konur helmingur þjóðarinnar.

Þegar þessir þættir eru skoðaðir í heild hlýtur spurningin að vakna. Er jafnréttið mikið í raun?



+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×