Skoðun

Sekt hinna saklausu

Óttar M. Norðfjörð skrifar
Á hverjum degi erum við kaffærð í fréttum. Flestar fara inn um annað eyrað og út um hitt, en ein hefur haldist lengi í höfðinu á mér. Fréttin fjallaði um heimilisofbeldi. Samkvæmt henni beitir sjötti hver karlmaður konuna sína ofbeldi á lífsleiðinni. Það eru rúm 16%. Ég á sex karlkyns vini. Tölfræðin segir mér að einn þeirra beiti konuna sína ofbeldi.

Karlmenn koma ekki vel út úr hvers kyns tölfræði. Við deyjum fyrr en konur, fáum undarlega há laun miðað við þær, og svo erum við líka ofbeldisfyllri. Yfir 80% heimilisofbeldis eru af völdum karlmanna. Yfir 80% kærðra nauðgana eru af hendi karlmanna. Einræðisherrar eru í 100% tilvikum karlmenn (ég man ekki eftir einni „einræðisfrú").

Karlmenn, kannski hljómar þetta öfgafullt, en sú staðreynd að við erum karlmenn gerir okkur að sökudólgum. Hvers vegna? Því annað hvort ert þú einn þessara 16% karlmanna sem beita konur ofbeldi. Við þig vil ég einfaldlega segja: Éttu skít.

Eða þú ert einn hinna karlmannanna, og við erum sem betur fer í miklum meirihluta eða 84%. Við þig segi ég: Einhver vina þinna er að beita konuna sína ofbeldi. Þótt þú neitir að trúa því, þá sýnir tölfræðin það. Og það er í þínum verkahring að gera eitthvað í málinu. Þótt þú tilheyrir þessum 84% ertu ekki saklaus, því stundum er aðgerðarleysi líka glæpur. Að ójafnrétti og ofbeldi þrífist í samfélagi okkar er ekki bara sumum að kenna, það er öllum að kenna. Líka þér.

Karlmenn, þorum að tala gegn misrétti þegar við verðum þess varir. Að þegja og líta undan jafngildir samþykki. Þorum að þagga niður í karlrembunum í kringum okkur og koma þeim þangað sem þær eiga heima - á fornminjasafn. Þorum að spyrja ef okkur grunar vafasama hegðun heima hjá vini okkar, því ef við gerum það ekki erum við að leggja blessun okkar yfir ofbeldi og óréttlæti. Ef aftur á móti allir láta til sín taka í jafnréttisbaráttunni - þar á meðal þú - getur Ísland orðið enn betra samfélag til að búa í.



+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×