Skoðun

Karlvæðing þjóðareigna

Gunnar Hersveinn skrifar
Margt er okkur hulið um kynbundið misrétti. Áratugum saman erum við slegin blindu - en svo bendir einhver á skekkjuna og misréttið verður óþægilega augljóst. Kynbundið misrétti blasir oft við þar sem völd og peningar koma við sögu.

Völd karla eru stofnanabundin og þeim er viðhaldið á hinum ýmsu sviðum samfélagsins. Konur eru ekki aðeins útilokaðar frá samráði í yfirráðakerfi karla heldur einnig frá þýðingarmiklum stjórnum í viðskiptalífinu og nefndum í stjórnsýslunni. Lýsandi dæmi um þetta er Framkvæmdanefnd um einkavæðingu, en þar sátu einungis sérvaldir karlmenn í þau fimmtán ár sem tilgreind eru á heimasíðu forsætisráðuneytis, árin 1992-2007. Það er hrópandi kynbundið misrétti sem bitnaði á allri þjóðinni.

Verkefni nefndarinnar voru einkavæðing, útboð rekstrarverkefna og sala ríkiseigna. Hún starfaði í umboði ráðherranefndar um einkavæðingu. Ráðherrar ríkisstjórna frá 1991 fólu henni mikilsverð verkefni, til dæmis sölu bankanna, Landsímans og HS Orku. Aðferðin við einkavæðingu bankanna er nú talin ein meginástæða hrunsins 2008 og einkavæðing HS Orku skapar ósætti um eignarhald og nýtingu auðlinda landsins.

Verkefni þessarar einkavæðingarnefndar vörðuðu óhjákvæmilega þjóðina alla, konur jafnt sem karla. En kona mátti greinilega ekki eiga sæti í þessari merkisnefnd. Ekki einu sinni starfsmenn nefndarinnar voru konur nema í blálokin, þegar allt var búið, hlaut ein kona þann heiður.

Einkavæðing íslenskra þjóðareigna má því með réttu kalla: einkavæðingu karla á eignum þjóðarinnar. Þetta er alvarlegt misrétti og sár móðgun gagnvart öllum sem unna jafnrétti og fyrri kynslóðum sem skópu þessar eignir. Hér var skefjalausa valdkúgun að ræða.

Einkavæðing karla merkir greinilega einhæfni og útilokun sjónarmiða og kemur í veg fyrir samráð og jöfnuð í samfélaginu. Fimmtán ára einræði örfárra karla í Framkvæmdanefnd um einkavæðingu var greinilega ekki æskilegt, heldur ávísun á mistök, yfirsjónir, þröngsýni, spillingu og hrun.

Jafnrétti er þjóðgildi sem tvívegis hefur verið valið af visku þjóðarinnar á þjóðfundum. Hlustum á þá visku! Aldrei aftur misrétti í boði ríkisins!



Tengill:


http://www.forsaetisraduneyti.is/raduneyti/verkefni/Einkavaeding/




+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×