Skoðun

Ofbeldi hugarfarsins

Stefán Máni skrifar

Flestir hafa frekar skýra hugmynd hvað ofbeldi er. Einhver er laminn í miðbænum um nótt og liggur þungt haldinn á spítala: ofbeldi. Lögregla er kölluð á heimili þar sem karlmaður lemur barnsmóður sína fyrir framan börnin: ofbeldi. En, eins og svo margt annað, þá leynist ofbeldi víða og á sér margar birtingarmyndir og ekki allar jafnaugljósar og í dæmunum hér á undan. Það er auðvelt að benda á dæmigerða ofbeldismenn (t.d. handrukkara) og lifa í þeirri blekkingu að maður sjálfur beiti aldrei ofbeldi.

Líkamlegt ofbeldi er bara toppurinn á ísjakanum. Samfélagið er gegnsýrt af ýmis konar hegðunar- eða hugarfarsofbeldi. Umferðin: Að keyra of hratt er ofbeldi. Að stoppa ekki fyrir gangandi vegfarendum er ofbeldi. Að svína, frekjast og flauta er ofbeldi. Inni á heimili: Að beita lamandi þögn er ofbeldi. Að stýra fólki með illilegum svipbrigðum og augnaráði er ofbeldi. Að sussa á barn þegar fréttatíminn hefst er ofbeldi. Vinnustaðir og skólar: Einelti er ofbeldi. Valdníðsla er ofbeldi. Auðvitað er langur vegur frá því að sussa á barn til útrýmingarbúða nasista, en ofbeldi er alltaf ofbeldi og ef það er ofbeldi í huganum mun það einn daginn brjótast út og bitna á einhverjum.

Klám er ofbeldi. Það skyldi ég ekki áður, en svo rann upp fyrir mér ljós: Bak við "glansmyndina", blekkinguna, er bara hópur af allsberu fólki sem fær borgað fyrir að nauðga hvert öðru, og þar með var gamanið búið fyrir mig. Einu sinni var klám sóðalegt tabú, en með tímanum hefur það læðst inn á miðjuna, í dagsbirtuna, og þykir ekki lengur neitt tiltökumál. Tískan litast af klámi og það þykir sjálfsagt að ögra, að vera yfirborðskenndur og djarfur, að tengja sig við menningu sem kennd er við klám. Í klámi eru konur hlutir, glimmeruð kjötstykki sem hafa þann tilgang einan að vera til taks fyrir þá sem vilja ríða. Svona einfalt. Þetta er svona þykjustuleikur sem er orðinn að fúlustu alvöru.

Hugarfar klámsins hefur smitast inn í samfélagið. Drengir alast upp í þessu hugarfari, meira eða minna: alveg örugglega meira en þegar ég var unglingur, netlaus í árdaga videótækjanna. Hugarfar kláms er hugarfar ofbeldis. Það er ekki hægt að banna klám, en ég held að samfélagið þyrfti að vera meðvitaðara um neysluna á því og hugarfarinu sem henni fylgir. Að horfa með girndaraugum á ókunnuga konu er ekki það sama og að klappa henni á rassinn eða draga hana afsíðis og nauðga henni.

Frá hugarfarinu til glæpsins er langur vegur, en það eru bara svo margir ungir menn lagðir af stað eftir þessum síbreikkandi, neon-lýsta vegi. Því miður.







+++++++++++++++++

Öðlingurinn 2011 er vitundarvakning. Átakið stendur yfir í mánuð, frá bóndadeginum (21. janúar) til konudagsins (20. febrúar).

Markmið þess er að stuðla að opinni umræðu um jafnrétti kynjanna á Íslandi. Nánar á heimasíðu átaksins, odlingurinn.is.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×