Skoðun

Jöfn foreldraábyrgð

Karvel Aðalsteinn Jónsson skrifar

Að vera foreldri er mikil hamingja en hlutverkinu fylgir ábyrgð. Við viljum sjá barninu farveg út í lífið, kenna því góð gildi og að vera því leiðarljós.

Jöfn ábyrgð beggja foreldra er að þessu leyti afar mikilvæg og stuðlar að jöfnuði á öðrum sviðum samfélagsins. Þessi foreldraábyrgð er þó ójöfn þegar kemur að skilnaðarbörnum og börnum sem eru fædd utan hjónabands og sambúðar - m.a. sökum þess að íslenskir dómstólar geta ekki dæmt foreldrum sameiginlega forsjá yfir börnum sínum þótt þeir teljist báðir hæfir, líkt og tíðkast í nágrannalöndum okkar. Þegar annað foreldrið hlýtur forsjána, eins og íslenska kerfið kveður á um, fylgja því ýmis réttindi sem hitt foreldrið fær ekki. Er það eðlilegt að einungis lögheimilisforeldrið fái allar félagslegar bætur en umgengnisforeldrið ekki krónu, þótt umgengni og framfærsla sé jöfn? Er það jafnrétti að annað foreldrið þurfi jafnvel að berjast fyrir því að fá eðlilega umgengni við börnin sín? Svarið við öllu þessu er auðvitað NEI en þetta er hins vegar staðan eins og hún er á Íslandi árið 2011 og hefur reyndar verið svo í áratugi. Þannig er Ísland langt á eftir nágrannalöndunum, viðheldur ójöfnuði með sjálfvirkum hætti og gerir öðru foreldrinu hærra undir höfði.

Er þetta æskileg staða? Ég held að allt skynsamt fólk sjái í hendi sér að svona eigi hlutirnir ekki að vera. Þetta á stóran þátt í að viðhalda ójafnri stöðu kynjanna á vinnumarkaði. Jafnari ábyrgð á börnum skapar báðum foreldrum meiri sveigjanleika í vinnu, hvað varðar tekjur, vinnutíma o.sv.fr.

Á meðan misrétti í foreldraábyrgð er til staðar munu kynin ekki standa jafnfætis á vinnumarkaði. Við þurfum því að breyta þessu og henda burt úreldum viðhorfum.

Með jafnri foreldraábyrgð stuðlum við að jöfnum tækifærum. Það er hins vegar stjórnvalda að breyta lögum, og vil ég benda á Noreg sem góða fyrirmynd í þeim efnum. Breytum hugarfarinu, gerum það nútímalegt og stuðlum að jafnri foreldraábyrgð og þar með jöfnum tækifærum beggja kynja í nútímasamfélagi.






Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×