Skoðun

Á að kasta Perlu fyrir svín?

Friðrik Haraldsson skrifar
Nýlega hrökk ég upp við vondan draum um að selja ætti Perluna í Reykjavík. Þangað hef ég um árabil farið sem leiðsögumaður með erlenda ferðamenn til að þeir geti á einum stað kynnst borginni, fengið sér í gogginn, keypt minjagripi, séð Sögusýningu og heillast af fögru útsýni ásamt því að fá upplýsingar um allt sem fyrir augu ber á fimm tungumálum. Mér skilst að 600.000 gestir komi í Perluna á ári. Mætti ætla að það væri nokkurs virði.

Perlan er kennileiti í Reykjavík, fögur bygging í sjálfu sér, völundarsmíð sem nú verður niðurskurði nýrra herra að bráð sem hafa sett á hana verðmiða, rúma 2 milljarða króna. Hvað ætli Sigurboginn myndi kosta? Eða dettur einhverjum í hug að Parísarbúar leggist svo lágt að selja hann?

Þyki tilfinningasemi ótæk rök skulum við athuga fjármálahliðina. Perlan er nauðsynlegur þáttur í ört vaxandi og gjaldeyrisskapandi ferðaþjónustu og framlag borgarinnar til móttöku á erlendum ferðamönnum. Hvaða ábatasömu starfsemi aðra sjá menn fyrir sér í Perlunni? Varla neina sem stenst lög að óbreyttu. Nema það sé satt sem maður heyrir að húsinu verði breytt í geymslu til að spara fasteignagjöld? Þá væri perlum kastað fyrir svín.

Sömu aðilar hafa leigt og annast reksturinn með miklum sóma frá því að Perlan var tekin í notkun 1991. Á sama tímabili hafa verið níu borgarstjórar í Reykjavík. Veitingamennirnir segja mér að látið sé eins og salan á húsinu komi þeim ekki við. Þó eiga þeir tvö ár eftir af leigutíma sínum og hafa borgað leiguna skilvíslega í 20 ár. Mætti ætla að slíkt viðskiptasamband væri einhvers virði.

Ég er kannski mest undrandi á því að ferðaþjónustan andmæli ekki þeim hugmyndum hástöfum að selja Perluna hæstbjóðanda. Sjálfur má ég ekki til þess hugsa að eitthvert bílaumboð eða banki kaupi hana undir starfsemi sína því að ég óttast að aðgangi almennings að henni verði lokað.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×