Matur

Hollustuvefjur með lambakjöti, pistasíum, mangói og kóríander

Rakel Sif Sigurðardóttir, nær­ingar- og heilsuráðgjafi, heldur úti dásamlegri síðu á Face­book sem ber heitið naering­og­heilsa en þar deilir hún upp­skriftum að dýrindis heilsu­réttum sem og góðum ráðum þegar kemur að elda­mennsku og heilsu.

Rakel, sem er bú­sett í Lúxem­borg með fjölskyldu sinni, gefur lesendum LÍFSINS hugmynd að helgarmat að þessu sinni.

Hollustuvefjur með lambakjöti, pistasíum, mangói og kóríander

(dugar fyrir fjóra fullorðna)

400 gr lambakjöt

2 msk. pistasíuhnetuolía

1 tsk. hlynsíróp

1 tsk. tahini (sesamsmjör)

½ dl smátt skornir pistasíu­kjarnar (ósaltaðir)

5 mjúkar sveskjur

Lambakjötið er skorið í þunnar sneiðar og blandað vel saman við marineringuna.

Látið kjötið marinerast í að minnsta kosti 30 mínútur. Einnig er hægt að útbúa marineringuna kvöldið áður og láta kjötið liggja í henni yfir nótt.

Því næst er kjötið snögggrillað á grillpönnu eða mínútugrilli í eina til tvær mínútur á hvorri hlið.

Álegg/meðlæti

Grillaða lambakjötið í marineringunni

Smá klettasalat

Smá spínat

Mangó, skorið í fínar sneiðar

Hnefafylli af kóríander, gróft skornu

3-4 vorlaukar, smátt skornir

½ rauð paprika í strimlum

1 stór gulrót í strimlum

Jógúrtsósa (hrein jógúrt, hvít­laukur, fersk mynta, agúrka, balsamic edik, smá pipar og salt)

Notið aðkeyptar eða helst heimatilbúnar hollustuvefjur fyrir uppskriftina.

Þessi uppskrift er ótrúlega auðveld, fljótleg og meinholl. Það er hægt að vesenast með þessa uppskrift á alla vegu og breyta innihaldsefnum eftir lyst. Ágætis afgangamáltíð sem er samt skemmtileg og spennandi. Svo finnst börnunum svona vefjur alltaf æðislegar!








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.