Matur

Helgarmatur Loga Geirssonar: Kjúklingur með sætum

„Uppáhaldið mitt er þessi uppskrift sem ég og konan eldum saman um helgar," segir Logi Geirsson sem sér um helgarmat Lífsins þessa vikuna. Logi leggur stund á viðskiptafræði í Háskólanum á Bifröst, þjálfar í gegnum heimasíðuna sína www.logigeirsson.is, ásamt því að halda fyrirlestra vítt og breitt um landið.

Kjúklingur með sætum

4 kjúklingabringur

1 poki spínat 300-400 grömm

1-2 sætar kartöflur ( fer eftir stærð)

5-6 hvítlauksrif (stór)

um 5 cm engiferrót

fetaostur í kryddlegi

ferskt kóríander

Sneiðið niður sætar kartöflur og þekið botn á eldföstu móti.

Engiferrótin og hvítlaukurinn maukuð í matvinnsluvél og síðan dreift yfir kartöflurnar.

Allt spínatið sett yfir (þótt það virðist mikið þá hverfur það í ofninum) svo er slatta af fetaosti og olíu hellt yfir það (1/3 af krukku).

Þetta er sett inn í ofn í um 20 mínútur við 180-200°C.

Kjúklingabringurnar kryddaðar (með t.d. Best á kjúllann) forsteiktar í grilli eða á pönnu um 85% af eldunartíma (kjöthitamælir sýnir um 72°C ).

Bringurnar svo settar ofan á spínatið og haft inni í um 10 mínútur í viðbót eða þar til bringurnar eru full eldaðar. og kjöthitamælir sýnir 83°C. Takið fatið úr ofninum og stráið ferskum kóríander yfir.

Borið fram með fersku salati og kaldri hvítlaukssósu.

Gerist varla betra!

www.logigeirsson.is








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.