Skoðun

Enn um sæstreng

Valdimar K. Jónsson skrifar
Greinar Magnúsar Bjarnasonar, framkvæmdastjóra markaðs- og viðskiptaþróunarsviðs Landsvirkjunar, í Fréttablaðinu 26. apríl og 9. maí 2012 eru athyglisverðar. Þar kemur fram að sæstrengur frá Íslandi til Bretlands standi ekki fjárhagslega undir sér, en þó væri hægt að réttlæta lagningu strengsins vegna breytinga á forsendum sem komið hafa fram á undanförnum árum. Nefnir hann m.a. „aukna spurn eftir endurnýjanlegri orku, markmið Evrópusambandsins 2020, hátt raforkuverð og spár um frekari hækkanir auk almennra tækniframfara" o.fl. á þessum nótum. Kannski er eitthvað af þessu líklegt en ekkert er fast í hendi.

Ég er þeirrar skoðunar að hagkvæmni svo stórrar framkvæmdar sem sæstrengur til Bretlands er, þurfi að liggja fyrir áður en ákvörðun er tekin, en ekki aðeins í formi óskhyggju og/eða trúar á einhverja tiltekna framtíðarþróun. Þegar ákvörðun var tekin á sínum tíma um byggingu Kárahnjúkavirkjunar, þá hafði verið gengið frá samningum til langs tíma um sölu á mestum hluta orkunnar frá virkjuninni. Umræddur sæstrengur er kostnaðarlega miklu stærri framkvæmd en Kárahnjúkavirkjun sem hingað til er talin stærsta framkvæmd Íslandssögunnar.

Í grein minni sem birtist í Morgunblaðinu 20. apríl 2012 óskaði ég eftir því að Landsvirkjun birti kostnað og aðrar upplýsingar um sæstreng til Bretlands. Þar er ég að tala um heildarkostnað við flutningsvirki, þar sem tekið væri tillit til allra nauðsynlegra framkvæmda svo og rekstrarkostnaðar, kostnaðar við fyrirbyggjandi viðhald og viðgerðir í bilanatilvikum.

Landsvirkjun hefur enn ekki séð ástæðu til að svara athugasemdum mínum, þrátt fyrir að ég hafi ítrekað þær í einkapósti 4. maí 2012 til formanns stjórnar Landsvirkjunar, Bryndísar Hlöðversdóttur. Morgunblaðið hefur eftir forstjóra Landsvirkjunar eftir ársfund 2012: „Lagning sæstrengs til Evrópu gæti stórbætt lífskjör á Íslandi. Mikilvægt væri að skapa sátt um þetta verkefni því það er ekki einkamál orkufyrirtækjanna á Íslandi."

Í seinni grein Magnúsar kemur fram hugsanleg þróun raforkusölu Landsvirkjunar fram til 2025, þar sem sæstrengur væri kominn í notkun 2018. Er þetta ekki allt of stuttur fyrirvari?

Landsvirkjun hefur leitt hjá sér að svara spurningum mínum og leiðir þannig hjá sér að taka þátt í opnum skoðanaskiptum um framkvæmdina eins og hún hefur margsinnis lýst yfir. Fyrirtækið hefur verið að vinna að undirbúningi í liðlega tvö ár svo það hlýtur að vera til fullt af upplýsingum og niðurstöðum, sem mætti birta opinberlega.

Hrunið kenndi okkur að ákvarðanir um stórar framkvæmdir eins og sæstreng mega alls ekki vera á hendi örfárra einstaklinga. Þeir gætu tekið upp á því að loka sig af í vistarverum ríkiskerfisins og birta aðeins við og við reifarakenndar vangaveltur um eitthvað allt annað en kjarna máls.

Næsta stórframkvæmd í orkumálum verður bara að ganga upp, annars förum við öll endanlega á hausinn.


Tengdar fréttir

Hvers virði eru tengingar? Geta allir unnið?

Evrópusambandið hefur sett sér metnaðarfull markmið hvað varðar endurnýjanlega orku og hyggst sambandið stórauka raforkuvinnslu með endurnýjanlegum orkugjöfum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×