Matur

Helgarmaturinn - Fljótlegur kjúklingaréttur

Guðrún Linda Pétursdóttir Whitehead ÍAK einkaþjálfari og CrossFit þjálfari hjá CrossFit Sport í Sporthúsinu.
Guðrún Linda Pétursdóttir Whitehead ÍAK einkaþjálfari og CrossFit þjálfari hjá CrossFit Sport í Sporthúsinu.

Guðrún Linda Pétursdóttir Whitehead ÍAK einkaþjálfari og CrossFit þjálfari hjá CrossFit Sport í Sporthúsinu deilir hér orkuríkri og hollri máltíð sem gæti hentað vel fyrir helgina.

Hráefnin eru fá og rétturinn fljótlegur en umfram allt bragðmikill og góður daginn eftir líka.

Innihald:

3-6 kjúklingabringur

2-3 msk. mango chutney

1 dós kókosmjólk

1-2 msk. Frank's Red Hot Buffalo Wings-sósa

Kryddað til eftir smekk með karríi, pínu engifer og kjúklingakrafti

Aðferð:

1. Skera kjúklingabringurnar í bita og steikja upp úr Hot Wings-sósunni.

2. Bæta svo við mango chutney og kryddinu þegar kjúklingurinn er að verða eldaður í gegn.

3. Leysa kjúklingakraftinn upp í smá soðnu vatni og bæta út í.

4. Setja kókosmjólkina út í bara rétt undir lokin.

Þetta er svo bara borið fram með hýðishrísjónum og fersku salati. 

Mjög fljótlegt og einfalt og ég geri oft stóran skammt sem ég get svo borðað dagana á eftir, þetta er frábært í nestisbox.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.