Matur

Fyrsti nýi bjórinn 2014

Úlfar Linnet skrifar
Úlfar Linnet
Úlfar Linnet
Bjóráhugamenn munu ekki þurfa að bíða lengi eftir nýjungum á komandi ári, en í fyrstu viku janúarmánaðar er vona á All Day IPA frá Founders í áfengisverslanir. Koma þessa bjórs er enn eitt þroskamerki íslenskrar bjórmenningar. Fyrir 6 árum var engin IPA til sölu í ÁTVR en með All Day IPA nær fjöldi þeirra tveggja stafa tölu.

India Pale Ale (IPA) bjórstíllinn einkennist af yfirgengilegri notkun humla sem gefa bjórnum mikinn ilm, bragð og beiskju. Upphaflega var humlaskammturinn aukinn til að bæta geymsluþol bjórsins og gera flutning hans frá Englandi til Indlands mögulegan um miðja 19. öldina. Þegar örbrugghús fóru að skjóta upp kollinum í Bandríkjunum upp úr 1980 má segja að stíllinn hafi verið enduruppgötvaður  með amerískum humlar sem gáfu honum nýtt líf.

All Day IPA er ljósgylltur, eilítið skýjaður með ljósa og snögga froðu. Ríkulegur ilmurinn ber með sér greipaldin, sítrus, mangó, blóm og grenitóna. Humlar eru vel til staðar í bragði og bjórinn er nokkuð beiskur. Þrátt fyrir að vera bragðmikill er bjórinn virkilega mjúkur og í góðu jafnvægi. Nafn bjórsins vekur nokkra furðu og ekki er ráðlegt að taka því of bókstaflega. Það vísar í raun til þess hversu lítið áfengur bjórinn er (4,7%) miðað við marga aðra IPA bjóra (nær 7%).

Koma Founders til Íslands takmarkast ekki við All Day IPA því á betri bjórbari munu einni koma; Backwoods Bastard, Centenniel IAP, Breakfast Stout, Porter og Dirty Bastard.

Það er ljós að bjórárið byrjar 2014 byrjar vel og eflaust er von á fleiri glaðningum þegar líður á. Skál!

Fyrir hverja: Alla sem kunna að meta humla

Ekki fyrir: Bragðhrædda með lágt beiskjuþol

Staður og stund: All day

Rangur staður: Áfengt gospartí








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.