Skoðun

Vinstri menn og atvinnulífið

Margrét K. Sverrisdóttir skrifar
Nú, þegar kosningar til Alþingis nálgast óðfluga, fara ýmsar gamlar draugasögur á kreik. Ein klisjan er sú, að vinstri menn séu andsnúnir eflingu atvinnulífsins, kunni ekki að fara með opinbert fé og leggi ekki næga alúð við að laða erlent fjármagn að landinu.

Núverandi ríkisstjórn hefur mótað atvinnustefnu þar sem hugvit og sköpunarkraftur atvinnulífsins er í forgrunni. Atvinnustefnu sem styður við stofnun og vöxt fyrirtækja m.a. með endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar, stóreflingu samkeppnissjóða og lagaramma um ívilnanir vegna nýfjárfestinga. Þá var komið á endurgreiðslum vegna kvikmyndagerðar sem hafa laðað erlenda kvikmyndagerðarmenn að landinu og stórbætt hag innlendrar kvikmyndagerðar.

Einnig var hrundið í framkvæmd stórátaki á sviði ferðaþjónustu sem hefur skilað öflugri ferðaiðnaði en nokkru sinni fyrr.

Þetta tókst þrátt fyrir afar erfiðar aðstæður eftir hrun.

Traustur gjaldmiðill nauðsynlegur

Við viljum sannarlega efla frjálst og skapandi atvinnulíf en til þess að það geti orðið þurfum við öflugri gjaldmiðil. Það, að við búum við ónýta krónu og gjaldeyrishöft, er ekki eitthvað sem ríkisstjórnin valdi sér, heldur afleiðing af óstjórn Sjálfstæðisflokks og Framsóknarflokks um árabil.

Ríkisstjórnin hefur líka unnið hörðum höndum að því á þessu kjörtímabili að tryggja þjóðinni eðlilega hlutdeild í auðlindum landsins með nýrri, endurskoðaðri stjórnarskrá sem stjórnarandstaðan á þingi hefur haldið í heljargreipum að undanförnu af því að þeir flokkar standa vörð um sérhagsmuni en ekki hagsmuni almennings í landinu.

Ríkisstjórnin setti lög sem bönnuðu varanlegt framsal orkuauðlinda í eigu ríkis og sveitarfélaga og mótaði orkustefnu fyrir Ísland. Við viljum tryggja að þjóðin sjálf fái varanleg yfirráð yfir auðlindum og að arðurinn renni til eflingar velferðarsamfélags og fjölbreytts atvinnulífs.

Við leggjum árangur ríkisstjórnar velferðar og jafnaðar fyrir íslensku þjóðina í þessum kosningum. Ríkisstjórnar sem hefur verið ábyrg og traust og tókst að koma á efnahagslegum stöðugleika og ná tökum á ríkisfjármálunum við einhverjar erfiðustu efnahagsaðstæður sem nokkur ríkisstjórn hefur þurft að kljást við.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×