Skoðun

Hvers vegna íþróttir?

Gísli H. Halldórsson skrifar
Íþróttaiðkun gegnir mikilvægu hlutverki í okkar samfélagi. Sumir stjórnmálamenn leggja mikla áherslu á fjármagn til íþróttastarfsemi. Hvers vegna þessar áherslur? Af hverju að eyða svo miklu almanna fé í íþróttir þegar nóg annað er við peningana að gera?

Heilbrigð hreyfing, eins og flestar íþróttir, er góð fyrir heilsuna, styrkir líkamlegt atgervi og getur þannig bætt lífsgæði og jafnvel aukið langlífi.

Afreksíþróttafólk getur orðið börnum og ungu fólki hvatning til að setja sér markmið í lífinu og fylgja þeim eftir, ýmist í sömu íþrótt eða á öðrum sviðum. Sá farvegur er flestum heppilegur og líklegur til aukinnar lífshamingju.

Íþróttaiðkun ungmenna er mjög þroskandi á marga vegu og er því eftirsóknarvert takmark í samfélaginu. Fyrir utan almennt góð áhrif á heilbrigði og líkamsþroska þá er íþróttaiðkun ungmenna líkleg til að auka getu og þroska þeirra til að taka þátt í samfélaginu, í liðsheildum og hópavinnu. Í hverju samfélagi eru þetta mikilvægir eiginleikar. Í dag er þetta orðið fólki enn betur ljóst, því eins segir í slagorðinu frá „Aldrei fór ég suður“: „Maður gerir ekki rassgat einn!“

Umgjörð íþrótta

Íþróttir þurfa góða umgjörð: Faglega leiðbeinendur og þjálfara, upprætingu á fordómum og misrétti, þátttöku aðstandenda og að sjálfsögðu góða aðstöðu.

Gott samstarf við HSV hefur gefið okkur tækifæri til að opna aðgengi að íþróttum fyrir sífellt fleiri börnum og eiga þau nú flest einhver tækifæri. Þetta góða samstarf þarf að halda áfram að þroskast.

Mannvirki til íþróttaiðkunar eru í sífelldri eftirspurn. Hátt ber þar yfirleitt mannvirki sem tengjast knattspyrnuiðkun, enda gífurlega fjölmenn og vinsæl íþrótt. Við byggjum auðvitað ekki hvað sem er hvenær sem er, en skynsamlegar fjárfestingar á heppilegum tíma hljóta alltaf að koma til greina.

Aðeins það besta

Í samstarfi við íþróttafélögin í Ísafjarðarbæ hefur nú verið unninn eins konar forgangslisti íþróttamannvirkja, þ.e. hvaða mannvirki hvert íþróttafélag leggur sérstaka áherslu á. Í-listinn, listi íbúanna, mun leggja sérstaka rækt við áframhaldandi samstarf við íþróttafélögin, með milligöngu HSV, um að uppfæra og endurskoða þennan lista og leita hagkvæmra leiða til að koma áhrifaríkum lausnum í framkvæmd eftir því sem tækifærin gefast.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×