Skoðun

Styrkur Sveitarfélagsins Árborgar

Ásta Stefánsdóttir skrifar
Á síðustu misserum hefur náðst góður árangur í rekstri Sveitarfélagsins Árborgar. Skuldir hafa lækkað og þar með er minni fjármunum varið í greiðslu vaxta og verðbóta. Skuldahlutfall eins og það er reiknað á grundvelli gildandi reglugerðar er nú komið niður í 130,2% en var 206% í lok árs 2010. Sveitarfélagið er því laust undan eftirliti Eftirlitsnefndar með fjármálum sveitarfélaga.

Góð staða sveitarfélagsins gerir það að verkum að lánastofnanir eru tilbúnar að veita sveitarfélaginu lán til framkvæmda og endurfjármögnunar á hagstæðum kjörum. Aukinn rekstrarafgangur gerir kleift að ráðast í frekari uppbyggingu innan samfélagsins og bæta og þróa þjónustu. Þjónusta sveitarfélagsins er síst minni nú en hún var áður en ráðist var í hagræðingu í rekstri, m.a. hefur opnunartími sundlauga lengst og öll leikskólapláss verið boðin til afnota.

Sveitarfélagið Árborg er vel í sveit sett, þar er veitt fjölbreytt þjónusta sem nýtist íbúum á stóru landsvæði og þeim ferðamönnum sem leið eiga um, hvort sem þeir fara um Suðurlandsveg á Selfoss eða um Suðurstrandarveg til Eyrarbakka og Stokkseyrar. Liður í uppbyggingu þjónustu fyrir ferðamenn og heimafólk er viðbygging við Sundhöll Selfoss sem nú hefur verið hafist handa við. Mörg sóknarfæri felast í ferðamennsku, enda leggur stór hluti innlendra sem erlendra ferðamanna leið sína um sveitarfélagið. Gistimöguleikum hefur fjölgað sem og tækifærum til afþreyingar.

Stöðug uppbygging

Talsvert framboð er af lóðum í öllum byggðarkjörnum sveitarfélagsins og veitir sveitarfélagið 25% afslátt af gatnagerðargjöldum. Fasteignaskattur af íbúðarhúsnæði hefur verið lækkaður þrjú ár í röð og gjaldskrárhækkunum haldið í lágmarki, m.a. hækkuðu gjaldskrár vegna leik- og grunnskóla ekki um síðustu áramót.

Grunn- og leikskólar eru öflugir og hefur skólastarf verið eflt með breyttu fyrirkomulagi sérfræðiþjónustu skólanna. Uppbygging íþróttamannvirkja hefur verið stöðug og markviss. Áframhaldandi uppbygging göngustíga milli byggðakjarna og innan þeirra býður upp á fjölbreyttari leiðir til að komast á milli staða, eflir samkennd og stuðlar að heilsueflingu. Allt gerir þetta sveitarfélagið að góðum búsetukosti.

Ábyrgð kjörinna fulltrúa er mikil enda taka þeir ákvarðanir sem snúa að meðferð almannafjár um þjónustu sem varðar alla íbúa sveitarfélagsins. Bæjarfulltrúar Sjálfstæðisflokksins hafa sýnt það og sannað að þeim er treystandi til að snúa mínus í plús. Tækifæri er til þess að viðhalda stöðugleika í rekstri og ábyrgri fjármálastjórnun sem skapar færi á að halda áfram að efla og bæta þjónustu og byggja upp innviði samfélagsins. Þetta tækifæri geta kjósendur í Árborg nýtt með því að setja X við D-lista í sveitarstjórnarkosningunum hinn 31. maí nk.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×