Skoðun

Nei takk launa­hækkun?

Gunnar Hólmsteinn Ársælsson skrifar

Atkvæðagreiðsla um nýtt vinnumat framhaldsskólakennara hefst þann 23.febrúar, eða á mánudagsmorgun. Þetta nýja vinnumat er ein af niðurstöðum verkfalls framhaldsskólakennara sem stóð í þrjár vikur síðastliðið vor og lamaði þá allt skólastarf í framhaldsskólum landsins. Markmið verkfallsins var að ná fram launaleiðréttingu sökum þess hve framhaldsskólakennarar höfðu dregist aftur úr í launum miðað við viðmiðunarhópa.



Sá samningur sem náðist tryggir um 30% launaleiðréttingu og hækkun, þegar allt er innreiknað. Samþykki kennarar vinnumatið fá þeir um 11% launahækkun, um níu prósent% í kjölfar samþykktar og önnur tvö í byrjun næsta árs. Felli kennarar hinsvegar dettur þetta um sjálft sig og samningar eru lausir á ný. Taka ber einnig fram að verði þátttakan í atkvæðagreiðslunni (sem er rafræn) verður undir 50% telst þetta vinnumat samþykkt.



Hópastærðin tekin inn

Meginatriðið í vinnumatinu er sú hugsun að þeir kennarar sem kenni meira og eru með stóra hópa fái meira borgað og raunverulega umbun fyrir að vera með stóra hópa. Þetta er gamalt baráttumál kennara, þ.e.a.s hópastærðin. Ekki er óalgengt að hópar í stórum framhaldsskólum í bóknámsgreinum séu á bilinu 25-32 nemendur. Ekki síst eftir hrun, þegar skólarnir fylltust af fólki. Það hljómar því nokkuð skringilega að loksins þegar á að koma til móts við eina háværustu kröfu framhaldsskólakennara, að þá séu mótmælin einnig sem hæst.



Ímynd kennara

Að mínu mati snýst þetta líka að stórum hluta um ímynd framhaldsskólakennara á Íslandi og framtíðarsýnina á starfið. Mikið hefur verið rætt um að kennarar njóti ekki virðingar í samfélaginu og gjarnan borið saman við Finnland, þar sem það þykir flott að vera kennari. Ég tel að einmitt einn liður í því að efla virðingu og stöðu kennara, sé einmitt að hækka launin. Og ætla kennarar sjálfir þá að fella eina mestu launahækkun sem í boði er á íslenskum vinnumarkaði um þessar mundir? Hvaða skilaboð sendir það út í samfélagið og til þeirra sem eru jafnvel að hugsa um það að verða kennarar?



Getur það mögulega verið: ,,Nei, ekki verða kennari, gerðu eitthvað annað!“



Fleira mætti ef til vill tína til en að lokum vil ég segja þetta: Menntun er ein af grunnstoðum samfélaga. Ég vil hvetja alla framhaldsskólakennara til þess að skoða þetta nýja mat með opnum huga. Síðustu samningar eru taldir (af nánast öllum) fela í sér umtalsverða leiðréttingu og hækkun launa framhaldsskólakennara. Ég spyr: Viljum við ekki fá hana?



Höfundur er kennari í Fjölbrautaskólanum í Garðabæ.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×