Matur

Bráðhollt heilhveitibrauð og ljúffengt hummus

visir.is/EVALAUFEY
Heilhveitibrauð með sólblómafræjum og ljúffengt hummus með paprikukryddi
Heilhveitibrauð  

8 dl heilhveiti

1 dl haframjöl

1 dl hörfræ

2 dl sólblómafræ

1 dl kókosmjöl

1 tsk sjávarsalt

1 tsk lyftiduft

1 msk hunang

7 dl ab mjólk

3 dl ylvolgt vatn

Aðferð:

Hitið ofninn í 200°C. Blandið öllum hráefnum saman í skál, það er ágætt að blanda þurrefnum fyrst og bæta síðan vökvanum við. Um leið og deigið er samlagað þá er það tilbúið. Látið deigið í pappírsklætt formkökuform og bakið í 55 – 60 mínútur. Leyfið brauðinu að kólna í svolitla stund áður en þið berið það fram. Ilmurinn sem fer um heimilið þegar brauðið er tilbúið er dásamlegur og það er fátt betra en nýbakað brauð.

Hummus með paprikukryddi

200 g forsoðnar kjúklingabaunir

2 msk tahini (sesamsmjör)

safi úr einni sítrónu

2 hvítlauksrif

½ tsk paprikukrydd

½ tsk cumin krydd

½ tsk sjávarsalt

ólífuolía, magn eftir smekk 

Aðferð:

Setjið öll hráefnin í matvinnsluvél og maukið þar til blandan er orðin slétt. Skreytið gjarnan með paprikukryddi, smá sítrónusafa og ólífuolíu. 

Þið finnið fleiri uppskriftir frá Evu Laufeyju á matarbloggi hennar. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.