Matur

Bestu súkkulaðibitakökurnar

visir.iS/EVALAUFEY
Amerískar súkkulaðibitakökur
Amerískar súkkulaðibitakökur

Einföld og góð uppskrift að súkkulaðibitakökum sem hitta alltaf í mark.  

2 egg 


230 g smjör

400 g sykur 

3 tsk vanillusykur

320 g hveiti 

1 tsk lyftiduft

salt á hnífsoddi

1 tsk matarsódi

150 g hvítt súkkulaði, smátt saxað (eða hnappar)

150 g dökkt súkkulaði, smátt saxað (eða hnappar)

Aðferð

Hitið ofninn í 180°C. Hrærið saman smjör og sykur í nokkrar mínútur, bætið eggjum saman við, einu í einu.

Blandið hveiti, vanillu, lyftidufti, matarsóda og salti saman við og hrærið vel.

Í lokin bætið þið súkkulaðidropum við deigið með sleikju. Mótið kúlur með tveimur matskeiðum og leggið á pappírsklædda ofnplötu. Bakið í 8 – 10 mínútur við 180°C.

Þið finnið fleiri uppskriftir Evu Laufeyjar á matarbloggi hennar. 








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.