Skoðun

Til hamingju og takk fyrir skutlið

Magnús Guðmundsson skrifar
Það er gaman að vera Íslendingur með áhuga á íþróttum þessa dagana, eins og reyndar flesta aðra daga. Árangur íslenskra íþróttamanna á alþjóðavettvangi er með hreinum ólíkindum og með sönnu ástæða til þess að óska karlalandsliðinu okkar í fótbolta til hamingju með glæsilegan árangur. Og hamingjuóskir til körfuboltastrákanna sem eru að standa sig með sóma í Berlín þessa dagana og svo eigum við svo mikið af ungu og efnilegu fólki, bæði stúlkum og drengjum, að það er alveg með ólíkindum. 

Það er blómlegt íþróttastarf á Íslandi. Um allt land er gríðarlega öflugt æsku- og íþróttastarf í fjölda þróttmikilla félaga. Starf þar sem er leitast við að bjóða börnum og unglingum heilnæmar tómstundir sem og faglega þjálfun fyrir þá sem hafa hug á því og hæfileika til að taka íþróttaiðkun sína lengra. Jafnvel alla leið á EM í fótbolta í Frakklandi næsta sumar.

Að baki þessum árangri liggur gríðarleg vinna. Vinna þeirra ungmenna sem æfðu af kappi, völdu heilbrigðan lífsstíl og létu drauma sína rætast. Ómæld vinna þeirra sem sinntu þjálfun af fagmennsku og áhuga, sóttu sér menntun og sérhæfingu og mótuðu afreksfólk dagsins í dag. En síst af öllu skyldi þó gleyma því gríðarlega sjálfboðaliðastarfi sem er í raun meginstoð íþróttahreyfingarinnar á Íslandi í dag og hefur alltaf verið.

Af því tilefni er ljúft og skylt að senda hamingjuóskir til þeirra góðu kvenna og karla sem skutluðu á æfingar og leyfðu fótbolta í garðinum sínum. Til allra þeirra sem þvoðu botnlausa IKEA-poka fulla af sveittum, skítugum leppunum sem á stundum hafa verið keyptir meira af vilja en mætti – fórnfýsi fremur en auraráðum. Til þeirra sem seldu bílfarma af klósettpappír, flatkökum, lakkrís og harðfiski um helgar og nýttu svo sumarfríið sitt í að vera fararstjórar í íþróttaferðum og skipulögðu, pössuðu, snýttu og hugguðu hetjur framtíðarinnar þegar á móti blés. Til þeirra sem á hverjum degi halda utan um starf félaganna í óþakklátri baráttu fyrir þolanlegum fjárhag og gæta hagsmuna iðkenda með því að sjá þeim fyrir faglegum og hæfum þjálfurum.

Framlag þessa fólks er ekki síst lykillinn að þeim frábæra árangri sem gleður þjóðina og fyllir hana stolti. Lykillinn að því að það íþróttastarf sem börnum býðst á Íslandi er einfaldlega langtum öflugra en gerist víðast hvar annars staðar í veröldinni og jafnvel þó svo að við berum okkur saman við okkar góðu grannþjóðir.

Þetta fólk skiptir þúsundum og þau skipta sköpum á hverjum degi. Þeir sem nú hafa náð glæsilegum árangri og fagna honum verðskuldað þekkja þetta fólk og þakka þeim nú efalítið fyrir fórnfýsina og dugnaðinn. Það gerum við hin líka. Takk.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×