Girnilegir eftirréttir Sólveig Gísladóttir skrifar 27. nóvember 2015 15:00 Fersk ber með berjasósu og mascarpone-ostakremi og heimagert lífrænt súkkulaði. Myndir/Vilhelm „
Ég geri aldrei neitt flókið,“ segir Elín. Elín heldur úti vefsíðunni komduadborda.com sem hún setti í loftið á afmælisdaginn sinn þann 28. desember í fyrra. „Ég hef alltaf haft áhuga á mat. Ég fékk sem barn að vera frjáls í eldhúsinu heima og fór í sveit sem krakki fram á unglingsár þar sem ég aðstoðaði í eldhúsinu og fékk að baka og gera það sem ég vildi. Eftir að ég fór að búa fór ég að reyna mig áfram, keypti matreiðslubækur og fór á námskeið,“ segir Elín sem hefur ávallt viljað búa til sem hollastan mat fyrir fjölskyldu sína. Þegar hún var beðin um uppskriftir að eftirréttum í Jólablaðið ákvað hún að ráðfæra sig við dætur sínar. „Þær voru allar sammála um að velja mascarpone-eftirréttinn enda er hann í miklu uppáhaldi. Súkkulaðið valdi ég því það er ekki langt síðan ég lærði að búa það til. Bæði er það ofboðslega gott en það er líka að stærstum hluta lífrænt og því næstum eins og að fá sér vítamínmola,“ segir hún glaðlega. Hún segir réttina báða mjög auðvelda. „Ég geri aldrei neitt flókið,“ segir hún og hlær. Girnilegur réttur sem hentar bæði sem eftirréttur og á kaffihlaðborð í jólaboðum stórfjölskyldunnar. Mynd/VilhelmFersk ber með berjasósu og mascarpone-ostakremi 250 g mascarpone, 1 askja 1 dl sýrður rjómi 50 g pálmasykur 1 stk. vanillustöng 250 ml rjómi Léttþeytið rjóma. Ostur, sýrður rjómi, sykur og korn innan úr vanillunni eru sett í matvinnsluvél. Blandað saman þar til allir kekkir eru farnir. Blandið saman við rjómann. Notið sleikju. Berjasósa 200 g bláber, frosin 1 msk. pálmasykur 2 tsk. chiafræ Setjið ber og pálmasykur í pott. Sjóðið saman við vægan hita í 5 mínútur. Hrærið í og stappið með sleif. Bætið chiafræjum saman við í lokin. Látið kólna. Þó hér séu notuð bláber gefst vel að nota aðra ferska ávexti. Raðið saman annaðhvort í litlar desertskálar eða stóra skál. Setjið berjasósuna neðst, þá kemur mascarpone-kremið, ofan á fersk niðurskorin ber, aftur mascarpone-kremið og ferskir ávextir á toppinn. Í stóru skálina gerði Elín tvöfaldan skammt sem dugar fyrir tólf manns. Heimagert lífrænt súkkulaði Blöndunni er hægt að skipta í tvennt og vera með ólík bragðefni. 1 bolli lífrænt kakósmjör 1 bolli lífrænt kakóduft ½ bolli lífrænt hunang Blanda 1 1 tsk. lífrænt vanilluduft Blanda 2 2 tsk. lakkrísduft 1 tsk. lakkríssalt ½ dl saxaðar möndlur eða hnetur Bræðið fyrst kakósmjörið, gætið þess að ekki fari vatn í það. Byrjið á að setja sjóðandi vatn í frekar stóra skál. Setjið kakósmjörið í aðra skál sem sett er í skálina með með heita vatninu. Látið bráðna. Takið skálina úr vatninu. Bætið restinni af innihaldsefnunum út í og hrærið vel saman. Hellið blöndunni í smjörpappírsklætt kökuform eða sílikonform. Dreifið möndlunum eða hnetunum yfir súkkulaðið. Látið storkna inn í ísskáp í a.m.k. hálftíma. Brjótið súkkulaðið í passlega mola og geymið í lokuðu íláti í ísskáp.
Eftirréttir Jól Jólafréttir Jólamatur Matur Mest lesið Improv Ísland tekur jólapeysuna í fóstur Jól Skín í rauðar skotthúfur Jól Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól Stollenbrauð Jólin Svið í jólamatinn Jól Jólaklukkur Jól Jólin mikil vinnutörn hjá Svölu Jól Látlaust og stílhreint í ár Jólin Jólakaffi með kanil og rjóma Jól Hikar ekki við að fara á trúnó í jólakortaskrifunum Jól
Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól
Jólalag dagsins: Jógvan Hansen og Friðrik Ómar sungu um mömmu kyssa jólasvein á íslensku og færeysku Jól