Skoðun

Stórasta hátíðin í öllum heiminum

Magnús Guðmundsson skrifar
Ísland er ekki lítið land. Ísland er stórasta land í heimi,“ sagði Dorrit Moussaieff forsetafrú á tilfinningaþrungnu augnabliki í lífi lítillar þjóðar. Karlalandsliðið í handbolta var nýbúið að tryggja sér sæti í úrslitaleik Ólympíuleikanna og það er ekki lítið afrek fyrir litla þjóð. Þessi ummæli vöktu mikla gleði í stóru hjarta lítillar þjóðar. Ekki vegna þess að þau væru mælt á örlítið bjagaðri íslensku heldur fremur vegna þess að Dorrit sagði að við værum stór. Fátt gleður smáþjóðina meira en að vera stór.

Íslenska þjóðin hefur líka haft ófá tækifærin í gegnum tíðina til þess að gleðjast yfir afrekum sínum á alþjóðlegum vettvangi íþrótta, lista og menningar. Það er eitthvað sem við megum með sönnu vera stolt af í alla staði. En einmitt vegna þess að við erum smáþjóð.

Engu að síður virðumst við endalaust finna hjá okkur þörf til þess að reyna að hafa alla hluti sem stærsta og mesta. Við viljum t.d. halda eins stórar hátíðir og veislur og mögulegt er með það að meginmarkmiði að gefa þeim nú ekkert eftir, þessum veislum úti í hinum stóra heimi. Menningarnótt í Reykjavík er ágætis dæmi um þetta.

Menningarnótt í Reykjavík er um margt vel heppnuð hátíð. Uppfull af alls konar skemmtilegum list- og menningarviðburðum þar sem allir eiga að geta fundið eitthvað við sitt hæfi. En hún er líka ágætis dæmi um það hvernig það sem er stórt og fyrirferðarmikið tekur yfir það sem er lítið og skemmtilegt. Fyrstu árin einkenndist Menningarnótt af því að borgarbúar, sem og aðrir gestir, gátu lagt leið sína í miðbæinn til þess að njóta fjölda smárra en skemmtilegra listviðburða.

En smátt og smátt virðist blessuð minnimáttarkenndin hafa náð í skottið á okkur og í seinni tíð virðist vera aukin áhersla á risatónleika sem ríkisstofnun stendur fyrir af einhverjum ókunnum ástæðum. Að ógleymdri flugeldasýningu sem er kannski í boði stórfyrirtækis. Það er dálítil synd hvað okkur gengur illa að halda í fegurðina og gleðina sem býr í hinu smáa og sjálfsprottna.

Í þessu smáa og sjálfsprottna felast nefnilega verðmæti sem vert er að hlúa að. Tónleikar í bakgarði og myndlistasýning á miðri götu eru nefnilega frábær vettvangur fyrir fjölskylduna til þess að njóta samveru og eiga góðar stundir. Vettvangur sem hefur heilmargt fram yfir fyrirferðarmikla tónleika á Arnarhóli þar sem allt er keyrt í botn, foreldrar ríghalda í börnin í mannþrönginni og unglingarnir eru fyrir löngu farnir fyrir framan sviðið að reyna að ná soga í sig síðustu útihátíðartóna sumarsins.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×