Skoðun

Hann breytti embættinu

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Ólafur Ragnar Grímsson ætlar ekki að gefa kost á sér til endurkjörs. Íslendingar sem ekki hafa náð miðjum aldri, muna ekki eftir öðrum forseta á Bessastöðum.

Tuttugu ár eru langur tími. Ólafur Ragnar sat ekki auðum höndum. Raunar má segja að á köflum hafi hann verið aðsópsmeiri en flestir fyrirrennara hans á heilum forsetaferli. Flestir forverar Ólafs, ef ekki allir, lögðu upp úr því að sitja á friðarstóli.

Það er ekki stíll Ólafs Ragnars. Hann er forsetinn sem sagði og gerði. Á meðan mótaði hann embættið. Kosningar í sumar munu öðrum þræði snúast um hvort halda eigi áfram þeirri vegferð Ólafs Ragnars að hefja forsetaembættið til raunverulegra pólitískra áhrifa.

Af áramótaávarpi forsetans mátti lesa milli línanna hvað hann telur til sinna helstu afreka á síðustu árum. Þar standa Icesave-samningarnir hæst. Ólafur Ragnar synjaði sem kunnugt er tvennum lögum staðfestingar er leggja áttu grunn að sátt í málinu. Þjóðin hafnaði lögunum í báðum tilvikum í þjóðaratkvæðagreiðslu. Ísland vann að lokum fullnaðarsigur í málinu. Forsetinn tefldi þar djarft, var ekki bara öryggisventill þegar á reyndi, heldur líka öflugasti talsmaður þjóðarinnar.

Ólafur Ragnar nefndi líka að tekist hefði að stöðva vegferð Alþingis í átt að ESB aðild. Nú sé öllum ljóst að slíkar grundvallarbreytingar á fullveldi þjóðarinnar verði ekki gerðar nema að undangenginni þjóðaratkvæðagreiðslu. Hann telur sig einnig hafa átt þátt í að koma í veg fyrir breytingar á stjórnarskránni.

Þessi tvö síðastnefndu mál eru sumpart táknmynd þeirra breytinga sem Ólafur hefur gert á embættinu. Það er ekki endilega hvað hann gerir, heldur óttinn við hvað hann kunni að gera sem hefur stærst áhrif á daglegt pólitískt amstur á Íslandi. Stærsta einstaka atvikið í því samhengi var synjun hans á fjölmiðlalögunum árið 2004. Með því virkjaði Ólafur Ragnar stjórnarskrárbundinn málskotsrétt forseta sem legið hafði í dvala frá lýðveldisstofnun.

Allar götur síðan hafa stjórnvöld þurft að hugsa til þess möguleika að málskotsrétti verði beitt.

Sennilega hefur þetta orðið til að auka vandvirkni á Alþingi. Líklegast er að makrílfrumvarpið umdeilda hafi að endingu strandað vegna ótta stjórnarliða við skoðun Ólafs á málinu. Ekki má heldur taka af Ólafi að hann er öflugur málssvari þjóðarinnar á alþjóðavettvangi.Þessi styrkur hans var öllum ljós í tengslum við Icesave-deiluna. Engum tókst betur að flytja málstað Íslendinga. Þessi óumdeildi styrkur hans hefur líka gert honum kleift að taka forystu á alþjóðavísu um málefni norðurheimskautsins.

Ólafur Ragnar er umdeildur forseti. Andstæðingar loka þó varla augunum fyrir því að forsetatíð hans er söguleg. Hann er forsetinn sem talaði máli okkar á alþjóðavettvangi, virkjaði málskotsréttinn og sat lengst allra. Það fer ekki hver sem er í fötin hans Ólafs Ragnars.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×