Skoðun

Fráleitar ásakanir í skjóli nafnleyndar

Steinþór Pálsson skrifar
Í Skjóðunni í Markaðnum, viðskiptablaði Fréttablaðsins, voru í gær settar fram alvarlegar rangfærslur og dylgjur í garð stjórnenda Landsbankans í skjóli nafnleyndar. Óhjákvæmilegt er að bregðast við þeim.

Í Skjóðunni segir m.a. að það sé „ekki hægt að halda því fram að að mönnum hafi ekki verið kunnugt um söluna á Visa Europe, sem nú færir nýjum eigendum marga milljarða“.

Við í Landsbankanum höfum aldrei sagt að við vissum ekki af valréttinum milli Visa Inc. og Visa Europe.

Ekkert lá fyrir um að Borgun ætti að fá greiðslur vegna Visa Europe

Við söluna á Borgun lá á hinn bóginn ekkert fyrir um að Borgun ætti rétt á að fá greiðslur vegna hans. Þessar upplýsingar lágu heldur ekki fyrir við fyrri viðskipti með hluti í Borgun, s.s. á árunum 2010 og 2011, en valrétturinn er frá 2007.

Landsbankinn hefur fengið þær upplýsingar að greiðslur til Borgunar vegna Visa Europe byggist að mestu leyti á erlendum Visa-umsvifum á því rúmlega ári sem liðið er frá því bankinn seldi hlut sinn.

Stjórnendur Borgunar hafa greint frá miklum vexti í útlöndum á árinu 2015. Landsbankinn vissi af áformum um vöxt erlendis en taldi þau áhættusöm, m.a. í ljósi fyrri útrásarsögu íslenskra kortafyrirtækja. Gagnrýni á bankann fyrir að selja á röngum tíma er skiljanleg en hafa verður í huga að bankinn sá ekki fyrir – fremur en aðrir – greiðslur til Borgunar vegna Visa Europe.

Landsbankinn taldi mikilvægt að selja minnihlutaeign sína í báðum kortafyrirtækjunum til að stuðla að sátt á kortamarkaði, enda lá fyrir sú afstaða Samkeppniseftirlitsins að aðeins einn banki mætti vera í eigendahópi kortafyrirtækis.

Bankinn seldi 31,2% hlut sinn á 2,2 milljarða króna. Söluverðið var 88% hærra en eigið fé Borgunar sem telst hátt verð fyrir fjármálafyrirtæki.

Mark tekið á gagnrýninni

Fullyrðingar Skjóðunnar um ásetning stjórnenda um að valda bankanum tjóni og að eignum hafi verið komið til „sérvalinna vina“ eru ósannar og fráleitar.

Við höfum tekið mark á gagnrýninni á söluferlið. Við hefðum betur haft söluferlið opið og við höfum breytt stefnu okkar til samræmis við það.

Frá því fyrst var greint frá greiðslum til Borgunar vegna Visa Europe í sl. viku hefur Landsbankinn lagt sig fram við að svara fyrirspurnum fjölmiðla og almennings. Til að gera nánari grein fyrir sölunni á hlutnum í Borgun opnaði bankinn á mánudag upplýsingasíðu á vef sínum. Við vonum að sem flestir kynni sér málið, líka þeir sem rita pistla undir nafnleynd í fjölmiðla.


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×