Skoðun

Að kúra með Alheiminum

Steingerður Kristjánsdóttir skrifar
Við afhendum börnunum okkar allan heiminn – Alheiminn - í einu litlu snjalltæki. Það er svo undir hælinn lagt hvort þau kunna á Alheiminn og efni í aðra sögu hvort við foreldrarnir erum þess megnug að kenna þeim á Alheiminn. Hvernig virka samskiptin þar, hvað má maður og hvað má maður ekki? Hvað segir maður og hvað segir maður ekki? Er fullorðna fólkið alltaf bestu fyrirmyndirnar í Alheiminum? Talar það alltaf fallega og sýnir sínar bestu hliðar á athugasemdasíðum fjölmiðla svo dæmi sé tekið? Eru foreldrar að setja reglur um hvenær og hvernig við nálgumst Alheiminn? Má til dæmis fara í rúmið og kúra með Alheiminn sér við hlið þegar farið er að sofa á kvöldin?

Gesturinn okkar - alheimurinn

Þessi nýju gestur á heimili okkar, alheimurinn, vekur upp margar spurningar sem við þurfum að leita saman svara við. 

Um daginn hitti ég móður sem sagði að internetið væri að eyðileggja skólagöngu dóttur sinnar. Þegar ég spurði nánar út í það kom sú skýring að unglingurinn, dóttirin hennar, gæti ekki vaknað á morgnana af því að hún væri svo lengi á netinu á kvöldin. Hún tæki símann með sér í rúmið og hann héldi vöku fyrir henni. Þegar ég spurði af hverju hún gerði það, var fátt um svör.

Hver ræður því hvernig börnin okkar nota tækin og tæknina? Hvað reglur ættu að gilda í hverri fjölskyldu og á hverju heimili? Hvernig er best að umgangast þennan gest og er hann alltaf til óþurftar?

Alheimurinn og öll þessi tækni sem nú er sjálfsögð orðin og alltaf innan seilingar er líka kærkomin. Kærkomin viðbót við námstækifæri okkar og barna okkar. Skapar tækifæri til náms og þroska, minnkar heiminn okkar og er frábær samskiptamiðill sem gerir okkur alltaf innan seilingar við okkar nánustu. En það þarf að finna þessu farveg og umgjörð í lífinu og samskiptunum.

Tómstundadagurinn og tæknin

Tómstundadagurinn 2016 beinir sjónum sínum að því hvernig við getum virkjað tæknina á jákvæðan hátt. Við viljum skapa vettvang fyrir samtal um þær áleitnu spurningar sem við stöndum frammi fyrir.  Hvernig við getum nýtt þessar nýjungar til að efla okkur í samskiptum, meðal annars við Alheiminn.  Hvað beri að varast og hvar tækifærin liggja. Það er ljóst að börn og unglingar nota internetið, snjalltækin, samskiptamiðlana í auknum mæli í sínum frítíma og því er nauðsynlegt að vera vakandi fyrir því að hvernig það er best gert á uppbyggilegan og jákvæðan hátt.

Á Tómstundadaginn koma saman starfsmenn af vettvangi frítímans og miðla því sem vel er gert auk þess sem fræðimenn fjalla um áhrif hreyfingarleysis og aukinnar kyrrsetu á heilsu og líf barna- og unglinga. Tómstundadagurinn er opinn öllum áhugasömum um frístundastarf barna og unglinga og allar nánari upplýsingar og skráningu má finna á https://menntavisindastofnun.hi.is/tomstundadagurinn_2016




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×