Skoðun

Aukið fjármagn til Háskóla Íslands: Hlutfall nemenda á hvern kennara of hátt

Baldur Helgi Þorkelsson og Málfríður Guðný Kolbeinsdóttir skrifar
Háskóli Íslands er í 222. sæti yfir bestu háskóla í heimi á nýuppfærðum lista Times Higher Education. Listinn tekur tillit til nokkurra þátta: Rannsóknarstarfs, áhrifa á alþjóðlegum vettvangi, kennsluhátta og námsumhverfis.

Af þessum fjórum þáttum er HÍ með lægstu einkunn í kennsluþættinum sem er meðal annars metinn út frá hlutfalli nemenda á hvern kennara.

Ef litið er til iðnaðarverkfræði- vélaverkfræði- og tölvunarfræðideildar eru þar um 800 nemendur og 22 fastráðnir kennarar. Virkir nemendur eru um 480 talsins. Því er hlutfall virkra nemenda á kennara 21:1. Í stefnu HÍ 2006-2011 var stefnt á að bæta þetta hlutfall úr 21:1 í 17:1. Staðan er sú að þetta hefur ekki enn tekist og má skýra það að hluta vegna takmarkaðs fjármagns frá ríkinu.

Nú er búið að setja fram stefnu HÍ fyrir tímabilið 2016-2021. Í námi og kennsluháttum eru sett fram þau markmið að lækka hlutfall nemanda á hvern kennara til að auka gæði náms og kennslu, og draga þar með úr vinnuálagi kennara. Tvenns konar aðgerðir eru nefndar til að fylgja þessum áætlunum eftir. Annars vegar að fjölga kennurum og hins vegar að breyta fyrirkomulagi við inntöku nemenda.

Á Times Higher Education listanum er HÍ í 13. sæti yfir háskóla á Norðurlöndunum. Ef fjármagn til HÍ er borið saman við fjármagn til háskóla á Norðurlöndunum er hann mjög undirfjármagnaður. Miðað við það er í raun ótrúlegt að við séum á listanum.

Á myndinni hér fyrir ofan sést að HÍ er fyrir neðan meðaltal OECD ríkjanna og með 30-40% minna fjármagn en Danmörk, Noregur og Svíþjóð. Þetta er alvarlegt mál og lýsir sér einna helst í því að kennarar eru með fleiri nemendur en æskilegt væri. Þetta fyrirkomulag kemur beint niður á gæðum kennslu.

Nú þegar hefur verið sett í stefnu Vísinda- og tækniráðs að fjárframlög til HÍ muni ná svokölluðu Norðurlandameðaltali á hvern nemenda árið 2020. Stefnt var þó að því að ná OECD meðaltalinu í ár en það hefur ekki gengið eftir. Ef HÍ ætlar sér að halda áfram að vera á meðal bestu háskóla heims og klífa lista Times Higher Education enn frekar verður að gera átak í að betrumbæta þátt kennsluhátta í skólanum. Það skilar sér einna best til nemenda og til samfélagsins með betur menntaðra fólki.

Það er lykilatriði að ríkisstjórnin leggi áherslu á að láta þessar áætlanir standast. Gæði náms er í hættu ef haldið verður áfram á sömu braut.

Greinin er hluti af greinaskriftaátaki Stúdentaráðs Háskóla Íslands.


Tengdar fréttir




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×