Skoðun

Allsnægtaþjóðfélagið skammtar hungurlús!

Björgvin Guðmundsson skrifar
Mikil viðbrögð voru við síðustu grein minni um kjör aldraðra. Margir eldri borgarar hringdu til mín og þökkuðu mér fyrir greinina. En jafnframt gerðu þeir mér grein fyrir kjörum sínum. Þau eru mjög slæm, miklu verri en ég hafði gert mér grein fyrir. Þó hef ég um margra ára skeið fylgst með kjörum eldri borgara sem formaður kjaranefndar Félags eldri borgara.

Það er stór hópur eldri borgara sem á erfitt með að draga fram lífið. Þessi hópur verður að velta fyrir sér hverri krónu og verður að neita sér um mjög margt. Dæmi eru um það, að sumir þessara eldri borgara eigi ekki fyrir mat. Þetta er hneyksli. Og þetta láta stjórnvöld viðgangast. Þau hreyfa hvorki legg né lið. Yppta aðeins öxlum.

Þarf byltingu?

Það er ljóst að það verður að stokka algerlega upp í kjaramálum aldraðra og öryrkja. Það duga engar skottulækningar. Það verður að stórbæta kjör aldraðra og öryrkja, þannig að það verði unnt að lifa með reisn á lífeyri almannatrygginga. En það er langur vegur frá því, að það sé unnt í dag.

Við búum í allsnægtaþjóðfélagi.Laun fólks eru á bilinu 600 þúsund til ein milljón á mánuði. Algengt er að fjölskyldur séu með tvo bíla. Farið er í eina til tvær skemmtiferðir til útlanda á ári. Mikil aðsókn er að dýrum tónleikum og leikhúsferðum. Eyðslan er í hámarki eins og fyrir bankahrunið. En á sama tíma og þetta gerist er verið að skammta eldri borgurum og öryrkjum 200 þúsund krónur á mánuði til þess að lifa af, þeim sem treysta á almannatryggingar. Og þeir sem hafa lágan lífeyrissjóð hafa litlu meira; sumir 250 þúsund á mánuði og einstaka 300 þúsund. Getum við boðið okkar eldri borgurum og öryrkjum þessi kjör?

Blettur á íslensku samfélagi

Kjör aldraðra og öryrkja á Íslandi eru blettur á íslensku samfélagi. Við verðum að þvo þennan blett af. Við verðum að gerbreyta kjörum aldraðra og öryrkja; stórbæta þau. Kjör aldraðra og öryrkja eiga að vera það góð að við getum verið stolt af því hvernig við búum að öldruðum og öryrkjum. Þessi málaflokkur á að vera í forgangi hjá okkur en ekki að mæta afgangi eins og gerist í dag. Kjör aldraðra og öryrkja á Íslandi eru miklu verri hér á landi en á hinum Norðurlöndunum og á Bretlandi. Við verðum að breyta þessu og það þolir enga bið. Það verður að breyta þessu strax.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×