Skoðun

Allt í plasti

Líf Magneudóttir skrifar
Við búum í neyslusamfélagi þar sem við erum að drukkna í drasli. Margir hlutir eru auðvitað nauðsynlegir en alls ekki allir. Og við þurfum alveg örugglega ekki allar þessar einnota plastumbúðir – jafnvel plastumbúðir í plastumbúðum! Yfirgengileg neysla okkar hefur nefnilega slæm áhrif á lífríkið og umhverfi okkar. Allt sem við látum frá okkur út í náttúruna skilar sér aftur til okkar, með góðu eða illu, því við lifum á afurðum hennar. Offramleiðsla á hlutum og vörum – svo ekki sé minnst á einnota umbúðir sem umlykja alla skapaða hluti – er mikill meinvaldur og það er löngu orðið tímabært að grípa til aðgerða.

Borgir mega ekki láta sitt eftir liggja í þessum slag. Reykjavíkurborg leggur áherslu á að fólk geti flokkað sorp sem mest á heimilum sínum. En borgin viðheldur líka óþarfa neyslu sem risastór innkaupaaðili. Þarna þarf borgin að vera til fyrirmyndar og leiðandi í að hætta að kaupa óþarfa eins og t.d. einnota umbúðir og einnota plast. Margt er gert nú þegar til að innleiða vistvæn innkaup á starfsstöðvum borgarinnar og fyrir lok ársins eiga þær allar að vera búnar að tileikna sér Græn skref. Í þeim felst m.a. að allir starfsmenn noti margnota poka í innkaupum og að ekki verði keyptar vörur sem innihalda plastagnir ásamt ótal mörgu öðru sem stuðlar að umhverfisvernd.

Það má hins vegar alltaf gera betur. Og best gengur þegar við tökum höndum saman. Við, íbúar Reykjavíkur, getum líka breytt neysluvenjum okkar. Við getum gert betur í að flokka sorp og minnka sótspor okkar. Til stendur að samþykkja tillögu í borgarstjórn í dag sem miðar að því að hefja aðgerðir gegn einnota umbúðum. Við ætlum að auka fræðslu í samstarfi við grasrótarfélög, kaupmenn og íbúa. Ég vona að á komandi misserum takist Reykjavík að verða umhverfisvænasta borg í heimi. Við höfum öll tækifæri til þess og getum það! Losum okkur við einnota plast og aðrar umbúðir og gerum enn betur í endurnýtingu og endurvinnslu. Við skulum setja markið hátt og bjarga okkur frá því að drukkna í einnota umbúðum neysluhyggjunnar.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×