Skoðun

Árangur í jafnréttismálum er ekki tilviljun

Lilja Alfreðsdóttir skrifar
Jafnréttismál eru meðal forgangsmála Íslands á alþjóðavettvangi. Það kom því fáum á óvart að jafnréttismál væru sett á oddinn þegar Ísland tók við forystu EFTA um mitt árið og einsetti sér að ná árangri áður en árið væri á enda. Það er gaman frá því að segja að samstarfsríki okkar innan EFTA hafa sannarlega lagst á árarnar með okkur. Þau hafa samþykkt drög að jafnréttisstefnu fyrir samtökin og stefnt er að því að afgreiða hana fyrir jól. Þá hefur reglum um feðraorlof verið breytt, þannig að feður í hópi starfsmanna EFTA fá átta vikna orlof vegna fæðingar barns. Slíkt er langt því frá algilt á vettvangi alþjóðastofnana.

Árangur Íslands í jafnréttismálum kemur oft til umræðu með fulltrúum erlendra þjóða enda staða kvenna sterkari hér en í flestum öðrum löndum þótt enn sé talsvert verk óunnið. Barátta einstaklinga og félagasamtaka hefur skilað miklu og stjórnvöld hafa tekið mikilvægar stefnumótandi ákvarðanir, bæði sveitarstjórnir og Alþingi. Uppbygging leikskóla og niðurgreiðsla á dagvistun er ein slík, sem okkur þykir sjálfsögð en er nánast óhugsandi í mörgum löndum. Okkur þykir sjálfsagt að gefa öllum börnum tækifæri á að dvelja og þroskast á leikskólum og skapa tækifæri fyrir báða foreldra að vinna úti, kjósi þeir svo. Víða erlendis er það nær útilokað, þar sem kostnaður við dagvistun er gríðarlegur. Við þær aðstæður kemur það oftar en ekki í hlut móðurinnar að vinna heima, sem dregur úr áhrifum kvenna á vinnumarkaði, þátttöku í stjórnmálum og þar með þátttöku í ákvarðanatöku um samfélagsumgjörðina. Með því förum við mikils á mis.

Í tilefni alþjóðadags kvenna í mars birti tímaritið Economist glerþaks-vísitöluna fyrir 2016. Vísitalan byggir á gögnum OECD og Evrópuráðsins og sýnir hvar í heiminum konur eigi mesta möguleika á jöfnum tækifærum á vinnumarkaði. Ísland trónir á toppnum, á undan Noregi, Svíþjóð og Finnlandi sem skipa næstu þrjú sæti. Norðurlöndin eiga það sameiginlegt að hafa unnið skipulega og markvisst að bættri stöðu kvenna. Röðun landanna á toppi glerþaks-vísitölunnar er því engin tilviljun.

 

Þessi grein birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×