Skoðun

Þökk fyrir Gylfa

Logi Einarsson skrifar
Maðurinn er félagsvera og sá magnaði hæfileiki að vinna saman og miðla þekkingu, innan og milli kynslóða, hefur skapað honum einstaka stöðu meðal dýra. Örlög flestra okkar er að leggja aðeins ofurlítið af mörkum. Við hverfum að lokum hljóðlítið á braut og gleymumst fljótt. Aðrir rísa upp úr mannhafinu og marka djúp spor í söguna; gera samfélagið betra og fegurra. Einn þeirra var Gylfi Þ. Gíslason, fv. formaður Alþýðuflokksins. Í dag hefði Gylfi orðið 100 ára en hann fæddist þann 7. febrúar 1917 en lést 18. ágúst árið 2004 tæplega 88 ára gamall.

Gylfi hafði mikil áhrif á flest það fólk sem hann hitti og þau mál sem hann fjallaði um. Hann varð snemma baráttumaður fyrir jöfnuði og félagslegum umbótum og sagði fátækt og ömurlegar aðstæður fólks í kreppunni hafa gert hann að jafnaðarmanni. Gylfi var þó vel meðvitaður um það að maðurinn lifir ekki á brauði einu saman og manneskjan þarf líka á andlegri næringu að halda enda sjálfur ágætis tónskáld og píanóleikari.

Gylfi var mikilsvirtur skólamaður, fræðimaður, þingmaður í 36 ár og ráðherra í 15 ár. Hann beitti sér fyrir frjálsum viðskiptum og opnari samskiptum við umheiminn, ekki síst með því að hafa forgöngu um afnám hafta og skömmtunarkerfis í Viðreisnarstjórninni. Síðar birtust sömu áherslur í baráttu hans fyrir inngöngu Íslands í EFTA.

Á sviði menntamála stóð hann fyrir eflingu allra skólastiga og lögum um tónlistarskóla. Sá gríðarlegi kraftur og gæði sem eru í íslensku tónlistarlífi í dag eru ekki síst honum að þakka. Það væri því viðeigandi ef sönglagið Ég leitaði blárra blóma, eða eitthvað af hans fallegu verkum hljómuðu sem víðast í tónlistarskólum landsins í dag.

Fyrir hönd Jafnaðarmannaflokks Íslands, Samfylkingarinnar, þakka ég forsjóninni fyrir að hafa falið Gylfa Þ. Gíslasyni þrotlausa baráttu fyrir betri, fallegri og innihaldsríkari heimi.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×