Skoðun

Ríkinu stefnt vegna skerðinga á lífeyri aldraðra

Björgvin Guðmundsson skrifar
Málaferli gegn ríkinu eru í uppsiglingu vegna ólögmætrar skerðingar Tryggingastofnunar (ríkisins) á lífeyri aldraðra hjá TR vegna greiðslna úr lífeyrissjóði í janúar og febrúar á þessu ári. Þegar ný lög um almannatryggingar voru samþykkt á Alþingi haustið 2016 féll niður heimild til skerðingar á lífeyri þeirra aldraðra sem fengu greiðslur úr lífeyrissjóði. Í stað þess að láta Alþingi setja inn nýja heimild í lögin fyrir áramótin síðustu var farin sú leið að skerða lífeyri aldraðra án lagaheimildar. Það gerðist í tæpa tvo mánuði.

Í lok febrúar var heimild til skerðingar sett inn í lög um almannatryggingar á ný. Þá nam ólögmæta skerðingin orðið 5 milljörðum króna. Einhverjir stjórnarþingmenn sögðu á Alþingi, að menn hefðu vitað, að umrædd skerðing ætti að vera í gildi. Þetta eru furðuleg ummæli.

Í fyrsta lagi lýsa þau algerri óvirðingu við lagasetningu Alþingis; nánast er sagt, að ekki skipti máli hvort lagatextinn sé réttur eða ekki. Í öðru lagi horfir umræddur þingmaður (þingmenn) framhjá því, að eldri borgarar eru flestir andvígir umræddri skerðingu lífeyris og telja það himnasendingu, að heimild Alþingis til slíkrar skerðingar falli niður. Stór hluti eldri borgara vill að skerðing tryggingalífeyris vegna lífeyrissjóða verði afnumin með öllu og bætur greiddar fyrir skerðingu fyrri ára.

Skorað á LEB að fara í mál við ríkið

Flokkur fólksins sendi Landssambandi eldri borgara bréf, áskorun um að sambandið færi í mál við ríkið vegna ólögmætu skerðinganna í janúar og febrúar á þessi ári. Tilkynnti flokkurinn, að ef þetta yrði ekki gert innan 10 daga mundi flokkurinn sjálfur fara í mál við ríkið vegna ólögmætu skerðinganna. Málið stendur þá þannig, að annaðhvort fer Landssamband eldri borgara í mál við ríkið eða Flokkur fólksins gerir það vegna þess máls, sem hér hefur verið gert að umtalsefni.

Ég tel þetta gott framtak hjá Flokki fólksins. Ég er eindregið þeirrar skoðunar að stefna eigi ríkinu vegna ólögmætu skerðinganna á lífeyri aldraðra í janúar og febrúar á þessu ári. En ekki á að láta þar við sitja. Einnig á að undirbúa mál á hendur ríkinu vegna stöðugra fyrri skerðinga á lífeyri aldraðra hjá TR vegna lífeyrissjóða. En það var lagt til í stjórn Félags eldri borgara í Reykjavík.

Safna þarf gögnum til staðfestingar því, að það hafi verið skilningur þeirra, sem stóðu að stofnun lífeyrissjóðanna og þeirra sem fylgdust með því, að lífeyrissjóðirnir hafi átt að vera viðbót við almannatryggingar. Lítið er til af skriflegum staðfestingum á því, að svo hafi átt að vera og því þarf að rita niður slíkar staðfestingar og það tekur nokkurn tíma. Nauðsynlegt er að fara í mál við ríkið vegna fyrri skerðinga til þess að fá þeim hnekkt og tryggja fullan rétt aldraðra. Stjórnvöld, hver sem þau eru, fást ekki til þess að afnema skerðingar án málsóknar. Það er mitt mat.

Greinin birtist fyrst í Fréttablaðinu.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×