Matur

Í eldhúsi Evu: Sashimi-salat með ponzu-sósu

Eva Laufey skrifar
Sashimi-salat, einföld uppskrift að sumarlegu sushi sem er tilvalið sem forréttur eða léttur aðalréttur.
Sashimi-salat, einföld uppskrift að sumarlegu sushi sem er tilvalið sem forréttur eða léttur aðalréttur.

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að sashimi-salati.

Sashimi-salat með ponzu-sósu

Ákaflega einföld uppskrift að sumarlegu sushi sem er tilvalið sem forréttur eða léttur aðalréttur.

300 g lax, beinhreinsaður og skorinn í þunnar sneiðar

1 lárpera, vel þroskuð

1 mangó, vel þroskað

Blandað salat

1 dl límónusafi

3/4 dl sojasósa

1/2 rautt chili

1 1/2 msk. kóríander

1/4 tsk. rifið engifer

1 msk. vorlaukur, smátt skorinn

Sesamfræ, ristuð

Best er að byrja á ponzu-sósunni en það er japönsk sósa sem gerð er úr sojasósu og límónusafa. Blandið öllum hráefnum saman í matvinnsluvél eða hrærið saman í skál, þannig verður sósan örlítið grófari en báðar aðferðirnar eru jafn góðar. Geymið í kæli á meðan þið setjið laxinn á disk.

Skerið laxinn, mangó og lárperu afar þunnt og raðið á stórt fat eða litla diska. Setjið sósuna í skál sem er fyrir miðju á fatinu og raðið meðlætinu í kringum skálina.

Ristið sesamfræ á pönnu og dreifið yfir. Í lokin er bæði gott og fallegt að skera niður ferskt kóríander sem þið setjið yfir réttinn.








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.