Matur

Í eldhúsi Evu: Grilluð nautalund með æðislegu kartöflusalati

Eva Laufey skrifar
Þessi nautalund er ekkert að grínast.
Þessi nautalund er ekkert að grínast. Eva Laufey

Í þáttunum Í eldhúsi Evu, sem sýndir eru á Stöð 2 á fimmtudögum, töfra ég fram ýmsar kræsingar. Hér má finna uppskrift að sumarréttinum sem allir þekkja, grillaðri nautalund með kartöflusalati.

Grilluð nautalund

800 g nautalund

ólífuolía

salt og pipar

steinselja



Aðferð:

Skerið nautalundina í jafn stóra bita, ca. 200 – 250 g á mann. Veltið kjötinu upp úr ólífuolíu, salti, pipar og smátt saxaðari steinselju.

Grillið kjötið í ca. 4 mínútur á hvorri hlið en steikingartíminn fer vissulega eftir smekk. Leyfið kjötinu að hvíla í nokkrar mínútur áður en þið berið það fram.



Ljúffengt kartöflusalat - fullkomið með grillmat

20 stk soðnar kartöflur

2 dl majónes – eða meira, fer eftir smekk

1 msk franskt sinnep

1 laukur

2 soðin egg

½ msk steinselja

½ msk graslaukur

1 tsk hunang

1 tsk sítrónupipar

Salt, magn eftir smekk

Aðferð:

Skerið forsoðnar kartöflur í bita, skerið eggin smátt og saxið lauk afar fínt. Bætið öllum hráefnum saman í skál og hrærið varlega, saxið niður ferska steinselja og graslauk og bætið við í lokin.

Best er að kæla salatið í ca. 30 mínútur í kæli áður en það er borið fram.



Sveppasósa

10 sveppir

Smjör

½ villisveppaostur

250 ml rjómi

½ - 1 teningur nautakraftur

salt og pipar

Aðferð:

Skerið sveppi og steikið upp úr smjöri, kryddið til með salti og pipar. Hellið rjómanum saman við ásamt smátt skornum villisveppaosti, lækkið hitann og leyfið ostinum að bráðna í rólegheitum í rjómanum á meðan þið hrærið í.

Bætið nautakraftstening út í og kryddið eftir smekk með salti og pipar. Þegar sósan er orðin þykk er hún tilbúin og er bæði hægt að bera hana fram heita og kalda.  

Verði ykkur að góðu!








×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.