Skoðun

Gerbreytt staða

Kristín Þorsteinsdóttir skrifar
Verslun á Íslandi stendur á tímamótum. Áskoranir mæta kaupmönnum úr mörgum áttum. Miklu munar um internetverslunina en í ofanálag þurfa íslenskir kaupmenn nú að glíma við alþjóðlegar verslunarkeðjur sem hingað sækja í auknum mæli.

Á síðustu misserum hefur fjöldi alþjóðlegra fyrirtækja haslað sér völl á okkar litla markaði. Fyrst Bauhaus, svo Costco og nú síðast H&M. Útlend merki eru í sjáflu sér engin nýlunda. Breytingin felst í því að nú reka hin alþjóðlegu risafyrirtæki verslanirnar sjálf, milliliðalaust, en ekki með sérleyfissamningum eins og hingað til hefur nánast undantekningalaust tíðkast með þekkt útlend vörumerki eins og Zara, Sports Direct, Topshop, Debenhams.

Hingað til hafa alþjóðleg stórfyrirtæki vafalaust litið á Ísland sem of lítinn bita. Þau hafa einfaldlega ekki talið borga sig að opna verslanir hér á landi.

Augljóst er hvað hefur breyst - ferðamannafjöldinn. Ísland er ekki lengur einangruð eyja í norðri heldur vinsæll áfangastaður ferðamanna sem gjarnan vilja gera sín innkaup á stöðum sem þeir þekkja. Ísland er líka, og sennilega sérstaklega í tilviki Costco, áhugaverður tilraunamarkaður. Hér má prófa nýjungar og æfa sig áður en haldið er á stærri alþjóðlega markaði.

Innlendir kaupmenn hafa heldur betur fundið fyrir samkeppninni á undanförnum mánuðum. Gengi Haga, stærsta verslunarfyrirtækis landsins, hefur hríðfallið í kauphöllinni, og olíufélögin hafa sömuleiðis átt í vandræðum. Þá eru ótalin fyrirtæki sem ekki eru skráð á markað og þurfa ekki að birta rekstrarniðurstöður sínar.

Kaupmennirnir þurfa ekki bara að etja kappi við nýja alþjóðlega keppinauta, heldur einnig internetið. Heimurinn er skyndilega innan seilingar fyrir íslenska neytendur. Skórnir sem þú skoðar á netinu geta verið komnir upp að dyrum daginn eftir. Kostnaður við sendingu og opinber gjöld eru miklu minni en áður.

Áhugavert hefur verið að fylgjast með þessum breytingum dynja yfir. Þeir sem fyrir voru á markaðnum hafa reynt að undirbúa sig. Hagar hafa til að mynda minnkað verslanir sínar og hætt að selja föt. Óljóst er hvort þessar breytingar skili tilætluðum árangri.

Hvað neytendur varðar hefur verið athyglisvert að fylgjast með hversu mikils pirrings virðist gæta út í rótgróin verslunarfyrirtæki hér á landi. Það hlýtur að vera áhyggjuefni, að neytendur hafi það á tilfinningunni að á þeim hafi verið okrað. Vissulega er rétt að innlendir kaupmenn líða fyrir smæðina í samkeppni við erlenda risa. Þeir hafa líka búið við há opinber gjöld og vonlausan gjaldmiðil.

Það skýrir hins vegar ekki allt.

Íslenskra kaupmanna bíður það verkefni að endurheimta traust neytenda í breyttu rekstrarumhverfi. Tíminn leiðir í ljós hverjir standa uppi sem sigurvegarar að lokum.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×