Hver er munurinn á kaffi og orkudrykkjum? Jóhanna E. Torfadóttir skrifar 12. október 2017 15:30 Jóhanna E. Torfadóttir, næringarfræðingur og doktor í lýðheilsuvísindum.
Lesendum Vísis og Fréttablaðsins gefst kostur á því að senda sérfræðingum spurningar tengdar heilsu og lífsstíl á netfangið [email protected]. Í hverri viku birtast svör við völdum spurningum í Fréttablaðinu og hér á Vísi. Spurning: Hver er munurinn á kaffi og orkudrykkjum?Svar: Kaffi og orkudrykkir innihalda örvandi efnið koffín. Auk þess er oft bætt fleiri örvandi efnum í orkudrykki svo sem ginseng og jafnvel næringarefnum eins og amínósýrum og vítamínum. Kaffidrykkja hefur verið tengd við lægri sjúkdómatíðni og á það við um hóflega og jafnvel mikla neyslu (allt að 6 bollar á dag). Þessi jákvæðu áhrif eru líklegast tilkomin vegna andoxunarefna (pólýfenóla) sem eru í kaffibaununum en eru ekki í orkudrykkjum. Í venjulegum kaffibolla fáum við á bilinu 100-150 mg af koffíni og í einni dós af orkudrykk á bilinu 80-130 mg. Um flesta orkudrykki gildir að þeir skulu merktir með varnaðarorðunum: Ekki æskilegt fyrir börn eða barnshafandi konur eða konur með barn á brjósti. Koffín getur dregið úr einkennum þreytu, aukið hjartslátt og mögulega bætt einbeitingu. Rannsóknir sýna að mikil koffínneysla veldur neikvæðum áhrifum, eins og svefnerfiðleikum, þreytu, höfuðverk, magaverk, niðurgangi og pirringi. Þá er vitað að mikil koffínneysla, hvort sem er frá kaffi eða orkudrykkjum getur valdið fósturláti og eitrunareinkennum svo sem uppköstum, óreglulegum hjartslætti og yfirliði.Niðurstaða: Kaffi er orkusnauður drykkur en ef við bætum mjólk og sykri við þá eykst orkuinnihaldið. Sem dæmi inniheldur latte án síróps um 140 hitaeiningar. Í mörgum orkudrykkjum kemur öll orkan frá viðbættum sykri og algengt að ein dós (250 ml) innihaldi um 115 hitaeiningar sem samsvarar 14 sykurmolum. Sumir orkudrykkir innihalda lítið sem ekkert af hitaeiningum og gefa þá ekki orku en aðeins örvandi áhrif.
Mest lesið Ilmaðu eins og frambjóðendur: Snorri Másson með sama ilm og Svandís Svavars Lífið „Án okkar verður ekki til miðjustjórn“ Lífið Auðir og ógildir með kosningakaffi Lífið Ilmaðu eins og frambjóðendur Lífið „Ég hef ekki verið svona hot síðan ég var unghommi“ Lífið Kosningavökur flokkanna: Pílustaðir, hótel og kirkjur Lífið Kappleikar 2024: Bara tveir héldu með Donald Trump Lífið Myndir: Svona var baksviðs á kappræðum leiðtoganna Lífið Minnist föður síns: „Til hamingju með daginn hvar sem þú ert“ Lífið Jón og Hafdís ástfangin í 22 ár Lífið Fleiri fréttir Eins og að setja bensín á díselbíl „Eins og nýfráskilin kona á fjórða búbbluglasi“ Sjá meira