Skoðun

Vörumerki og persónuleiki, vertu þú sjálf/ur

Ósk Heiða Sveinsdóttir skrifar
Það er þetta með persónuleikann, allir eru með einn og þeir eru eins ólíkir og þeir eru margir, sumir heillandi aðrir ekki. Hvað með vörumerki? Þú hefur 5 sekúndur, hver er persónuleiki þíns vörumerkis? Varstu í vandræðum með að svara þessu, skiptir það máli?

Já, það er vissara að vera með þetta á hreinu og hvað vörumerkið stendur fyrir. Mikilvægt er að þú finnir þetta út fyrir þitt vörumerki, ekki láta samkeppnina skilgreina þig. Persónuleiki vörumerkis skiptir einnig miklu máli þegar kemur að uppbyggingu og viðhaldi merkisins, sérstaklega þegar lögð er áhersla á samþætta markaðssetningu þar sem öll skilaboð sem fyrirtækið sendir frá sér, frá samskiptum við viðskiptavini á samfélagsmiðlum til atvinnuauglýsinga og almannatengsla, séu í takt og innihaldi í grunninn sama rödd en aðlöguð fyrir hvern flöt og miðil. Sé lagt í þá vinnu að skilgreina persónuleika vörumerkisins verða samskipti við viðskiptavini og starfsmenn markvissari og skýrari.

Gott er að nota mannleg einkenni við að finna röddina, ef vörumerkið væri persóna, hver væri hún? Kona, karlmaður eða hvorugt, aldur, hvernig hagar hún sér og hvaða skoðanir hefur hún. Hvað elskar persónan og hvað myndi hún aldrei segja eða gera? Hugsaðu um hvernig þú vilt að markhópurinn upplifi vörumerkið og hvaða tilfinningar og viðbrögð það veki.

Dæmi um þetta er vörumerki þar sem persónuleikinn er fágaður, yfirvegaður og heiðarlegur, þá stingur í stúf ef auglýsingar tækju mið af því en á samfélagsmiðlum myndi vörumerkið birtast sem kjánalegt og svara með gríni og hroka. Þessari vinnu lýkur aldrei, á meðan vörumerkið er í notkun verður að sinna því og viðhalda. Ef því er ekki sinnt er hætta á því að skilaboð til viðskiptavina verði ómarkviss og úr karakter, sem gefur samkeppninni tækifæri til að láta til sín taka. Mörg íslensk vörumerki eiga mikið inni skilgreini þau sinn persónuleika og noti til að aðgreina sig frá samkeppninni og ná betur í gegn með sannri rödd þar sem skilaboð og tónn styðja hvort annað.

Það er enginn betri í að vera þú en einmitt þú, sama á við um vörumerki.

Greinin birtist fyrst í Markaðnum, fylgiriti Fréttablaðsins um viðskipti og fjármál.  




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×