Skoðun

Veldur kúamjólk brjóstakrabbameini?

Álfheiður Haraldsdóttir og Laufey Tryggvadóttir skrifar
Í sérblaði Fréttablaðsins um vegan fæði þann 1. nóvember 2017 var því haldið fram að kúamjólk væri einn helsti áhættuþáttur fyrir hormónatengdum krabbameinum á borð við brjóstakrabbamein.

Þessi staðhæfing á sér enga stoð samkvæmt þeim fjölmörgu rannsóknum sem gerðar hafa verið til að kanna hvort neysla á mjólk og mjólkurvörum sé áhættuþáttur fyrir brjóstakrabbamein. Árið 2011 var birt safngreining (meta-analysis) þar sem teknar voru saman niðurstöður 18 ferilrannsókna með alls um milljón þátttakendum. Niðurstaðan var sú að ekkert samband fannst á milli mjólkurneyslu og brjóstakrabbameins og í raun mátti sjá vísbendingar um lækkaða áhættu hjá konum með aukinni neyslu mjólkurafurða. Svipaðar niðurstöður komu fram í safngreiningu frá árinu 2015 þegar skoðaðar voru 27 rannsóknir, með alls um 1,5 milljón þátttakendum. Aftur bentu niðurstöður til minnkandi áhættu á brjóstakrabbameini með aukinni neyslu mjólkurafurða, sérstaklega meðal asískra kvenna.

Laufey ?Tryggvadóttir framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands
Þess ber einnig að geta að bæði Bandaríska krabbameinsrannsóknastofnunin og Alþjóðakrabbameinsrannsóknasjóðurinn (American Institute of Cancer Research og World Cancer Research Fund) gefa reglulega út ítarlegar skýrslur um tengsl mataræðis, hreyfingar og krabbameins þar sem farið er yfir nýjustu rannsóknir á þessu sviði. Í skýrslu sem gefin var út á árinu 2017 var það mat þeirra að neysla á mjólkurvörum væri ekki áhættuþáttur fyrir brjóstakrabbamein. Þvert á móti fundust vísbendingar um að neysla á mjólkurvörum gæti dregið úr hættu á brjóstakrabbameini sem greinist fyrir tíðahvörf.

Mun minna hefur verið rannsakað hvort neysla mjólkurafurða eftir greiningu á brjóstakrabbameini hafi áhrif á framgang sjúkdómsins og gefa þær örfáu rannsóknir sem til eru misvísandi niðurstöður. Árið 2013 birtist bandarísk rannsókn sem benti til þess að neysla á fituríkum mjólkurafurðum, smjöri og eftirréttum með rjóma, hefði tengingu við verri horfur kvenna með brjóstakrabbamein, auk þess sem tenging við aukna dánartíðni af öðrum orsökum en brjóstakrabbameini sást samhliða neyslu fituríkra mjólkurvara eftir greiningu. Engin tengsl fundust hins vegar milli neyslu á fituminni mjólkurafurðum og lífshorfa kvennanna. Í sambærilegri ítalskri rannsókn fannst hins vegar ekki samband á milli neyslu fituríkra mjólkurafurða og verri lífshorfa eftir greiningu. Ljóst er að þörf er á frekari rannsóknum á áhrifum mjólkurneyslu á framgang brjóstakrabbameins.

Almennar ráðleggingar varðandi áherslur í mataræði má finna hjá Embætti landlæknis. Þar er ráðlagt að velja fituminni, ósykraðar eða lítið sykraðar mjólkurvörur án sætuefna. Hæfilegt magn er talið vera tvö glös, diskar eða dósir af mjólk eða mjólkurvörum á dag (500 ml).

Álfheiður Haraldsdóttir er doktorsnemi í lýðheilsuvísindum.

Laufey Tryggvadóttir er framkvæmdastjóri Krabbameinsskrár Krabbameinsfélags Íslands.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×