Sprenging við bílalest forsætisráðherra Palestínu Samúel Karl Ólason skrifar 13. mars 2018 12:20 Rami Hamdallah, forsætisráðherra Palestínu, eftir árásina. Vísir/AFP
Sprenging varð við bílalest Rami Hamdallah, forsætisráðherra Palestínu þar sem hann heimsótti Gaza í dag. Samkvæmt heimildum AFP fréttaveitunnar var einnig skotið á bílalestina. Ráðherrann sakaði ekki en sjö særðust lítillega. Fatah-hreyfingin, sem Hamdallah tilheyrir, hefur sakaða Hamas, sem ráða ríkjum á Gaza, um að hafa reynt að ráða ráðherrann af dögum.Enginn hefur lýst yfir ábyrgð á árásinni en íslamistar sem eru andvígir Hamas eru einnig með starfsemi á Gaza. Innanríkisráðuneyti Hamas segir að rannsókn sé hafin og þrír hafi verið handteknir. Eftir árásina tók Hamdallah þátt í opnun skolphreinsistöð á Gaza en hann yfirgaf svæðið eftir athöfnina. Hamas hefur fordæmt árásina og segir hana hafa verið gerða af sömu aðilum og réðu Mazen Faqha, meðlim samtakanna, af dögum í fyrra. Áður höfðu samtökin sakað Ísrael um morðið á Faqha. Samtökin tóku ekki vil í ásakanir Fatah og sögðu að með þeim hefðu árásarmennirnir náð markmiði sínu. Undanfarin ár hafa sáttarviðræður átt sér stað á milli Fatah og Hamas en þær hafa litlum árangri skilað. Árásin í dag mun án efa erfiða þær viðræður enn frekar.
Mið-Austurlönd Mest lesið Sjálfstæðisflokkur stekkur fram úr Viðreisn og Samfylking áfram efst Innlent „Stjórnmálamenn eru að gera sig að fíflum í beinni útsendingu“ Innlent Ísstífla hrannast upp í Ölfusá Innlent Kosningavaktin: Íslendingar kjósa sér nýtt þing Innlent Kappræður gerðar upp: „Hann lenti upp á kant við nánast alla í stúdíóinu“ Innlent Samtökin '78 kæra oddvita Lýðræðisflokksins Innlent „Allt það sem mannlegur máttur ræður við er undir góðri stjórn“ Innlent „Ég sé eftir því að nokkru leyti“ Innlent „Ég mun deyja á þessari hæð“ Innlent Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Erlent Fleiri fréttir Assad-liðar gefa hratt eftir í Aleppo Síðasta heimsókn forseta fyrir opnun Notre Dame Tjadar og Senegalar segja Frökkum að koma sér Reyna að flytja óstöðugt andefni með vörubílum Njósnarar Rússa ræddu morð eða rán á blaðamanni Yfirvöld í Laos banna sölu Tiger vodka og viskís Vilja aðkomu Kínverja að rannsókn á skemmdum sæstrengjum Pútín hótar afdrifaríkum árásum á Kænugarð Grænlendingar fagna nýjum alþjóðaflugvelli Segja að endurtaka verði kosningarnar umdeildu í Georgíu Sækja óvænt og hratt að Aleppo Segir skemmdarverk Rússa í Evrópu geta leitt til átaka Haldlögðu metmagn af kókaíni í sameiginlegri aðgerð 62 ríkja Rússar gera umfangsmiklar árásir á orkuinnviði Úkraínu Íranir hóta því að koma sér upp kjarnorkuvopnum Telja sig hafa fundið vísbendingu í máli D.B. Cooper Forsetaefni í Georgíu spilaði áður fyrir Manchester City Hinir 50 hafi allir verið „herra meðal-Jón“ Fangaskipti milli Bandaríkjanna og Kína Vopnahléið heldur en íbúar Gasa telja sig svikna Sendir Trump tóninn og hótar eigin tollum Lögreglumaður fundinn sekur um að bana 95 ára konu með rafbyssu Danska leiðin vekur lukku meðal bakhjarla Úkraínu Vopnahlé tók gildi í nótt og fólk farið að snúa aftur heim Vopnahlé milli Ísraels og Líbanon í höfn Þjóðhátíð í Nuuk vegna opnunar flugvallarins SpaceX skýtur kjarnorkuknúnum dróna út í geim Sprengdu tuttugu hús á tveimur mínútum Vildi pening í skiptum fyrir falleg orð í eyru Trumps Metárás á innviði með 188 drónum og fjórum skotflaugum Sjá meira