Skoðun

Tímabærar aðgerðir

Kjartan Hreinn Njálsson skrifar
Taugaeitursárásin í Salisbury fyrr í þessum mánuði var ekki aðeins tilræði við fyrrverandi gagnnjósnara Breta hjá rússnesku alríkislögreglunni (FSB), heldur ósvífin og fordæmalaus árás gegn íbúum Evrópu. Tæplega fjörutíu manns urðu fyrir barðinu á Novichok-taugaeitrinu þegar því var sleppt í hjarta smábæjarins. Eitrið er, samkvæmt rússneskum vísindamönnum, það banvænasta sem þróað hefur verið, og var það framleitt í tonnavís á seinni hluta síðustu aldar í Sovétríkjunum.

Leiðtogar Evrópusambandsins tóku undir með breskum yfirvöldum að afar líklegt væri að árásin væri á ábyrgð stjórnvalda í Rússlandi, og í gær voru 140 rússneskir útsendarar og diplómatar, í 25 löndum, gerðir brottrækir.

Voðaverkið í Salisbury er auðvitað ekki það eina sem skiptir máli í þessum efnum. Hafa ber í huga ólöglega innlimun Krímskaga í Rússland, tilraunir til að hafa áhrif á forsetakosningarnar í Bandaríkjunum árið 2016, umfangsmiklar og ríkisstuddar tölvuárásir, að ógleymdu banatilræðinu við Alexander Lítvínenko, fyrrverandi starfsmann FSB og breskan ríkisborgara, árið 2006 þar sem stórhættulegt geislavirkt efni var notað (pólóníum 210).

Fyrir utan þessar árásir á fullveldi ríkja, eins og Úkraínu og Georgíu, og tilraunir til að grafa undan trausti stofnana á Vesturlöndum, ásamt aðgerðum til að raska hinu lýðræðislega ferli sem myndar grundvöll samfélags okkar, þá hafa rússnesk yfirvöld orðið uppvís að kerfisbundnum mannréttindabrotum sem eru allt of mörg til að tíunda hér.

Vonandi er sú linkind sem þjóðarleiðtogar hafa sýnt rússneskum yfirvöldum á enda. Brottrekstur 140 diplómata er öflugt svar og sömuleiðis eru viðbrögð íslenskra yfirvalda yfirveguð, viðeigandi og umfram allt uppbyggileg þar sem áhersla er lögð á að halda samskiptaleiðum milli Rússlands og Íslands opnum.

Sama hvert svar rússneskra yfirvalda verður við aðgerðum og þrýstingi þá er það fyrir öllu að rússneska þjóðin verði ekki látin gjalda fyrir gjörðir leiðtoga sinna. Michael Nevin, sendiherra Bretlands á Íslandi, komst svona að orði í Fréttablaðinu í gær:

„Við eigum ekkert sökótt við rússnesku þjóðina, sem getur verið stolt af afrekum sínum […] En við deilum öll skyldu til að andæfa metnaði ráðamanna í Kreml til að kljúfa og veikja alþjóðasamfélagið. Í hvert sinn sem rússneska ríkiskerfið brýtur alþjóðalög, eflist hættan sem af því stafar.“




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×