Skoðun

Vonbrigði stúdenta

Logi Einarsson skrifar
Úthlutunarreglur LÍN 2018 - 2019 hafa verið kynntar og enn sitja stúdentar eftir með sárt ennið. Raunin er sú að þörfum stúdenta hefur ekki verið sinnt síðastliðin ár og þeir þurft að sætta sig við skertan hlut – en ríkisstjórn Katrínar Jakobsdóttur boðar enga breytingu á því ástandi.

Að okkar mati, og að mati talsmanna stúdenta, eru úthlutunareglurnar ekki sú kjarabót sem stúdentar þarfnast og hafa kallað eftir. Hækkun á reiknaðri framfærslu er minniháttar. Hún er enn þá töluvert undir 200.000 krónum og rúmlega 100.000 krónum lægri en lágmarkslaun. Reynt er að réttlæta þennan mikla mismun með vísan til þess að leiga á stúdentaíbúðum er lægri en á almennum markaði en það gengur illa upp vegna þess að aðeins brot af nemendum fá úthlutað íbúð. Frítekjumarkið var heldur ekki hækkað og hefur verið óbreytt síðan 2014 – en laun hafa á sama tíma hækkað um 32%.

Vanlíðan stúdenta

Vonbrigði stúdenta við þessum fréttum voru bæði augljós og eðlileg, enda eiga þeir margir erfitt með að ná endum saman. Þeir sem ekki geta fengið aðstoð frá foreldrum reyna oft að vinna með skóla en lenda þá í vítahring þar sem námslán þeirra skerðast fljótt vegna lágra frítekjumarka. Á sama tíma líður unga háskólafólkinu okkar ekki vel – en stór hluti háskólanema mælist með kvíða- og þunglyndisvandamál.



Nám er fjárfesting fyrir þjóðfélagið í heild og mikilvægt að allir sem vilja geti menntað sig. Í þessari efnahagslegu uppsveiflu væri ráð að fjárfesta almennilega í menntun, endurskoða LÍN og stórbæta kjör námsmanna.



Bætum kjörin

Hækka þarf reiknaða framfærslu þannig að hún taki mið af raunverulegum aðstæðum stúdenta. Það verður auk þess að hækka frítekjumarkið, efla dreifbýlisstyrki, hækka ferðastyrki, efla og nútímavæða þjónustu. Einnig þyrfti að taka upp samtímagreiðslur námslána svo að unga fólkið okkar þurfi ekki að setja sig í skuld við banka í stórum stíl. Þá ættum við að færa okkur í áttina að námsstyrkjakerfi líkt og annars staðar á Norðurlöndunum. Þessu höfum við í Samfylkingunni kallað eftir.

Við fögnum því að að flóttafólk öðlist rétt á námslánum. Það sem skiptir þó höfuðmáli er að raunhæft verði að lifa á námslánum.

Við þurfum almennilega framtíðarsýn í menntamálum á Íslandi til að vaxa og dafna og til að takast á við þær hröðu breytingar sem eru fram undan. LÍN spilar þar stórt hlutverk og tími til kominn að endurskoða og nútímavæða sjóðinn og gæta þess að hann sinni raunverulega hlutverki sínu sem jöfnunartæki.

Höfundur er formaður Samfylkingarinnar




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×