Skoðun

Ferðaþjónusta á tímamótum

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm og Jakob S. Jónsson skrifar

Reykjavík – ferðaþjónusta í sátt við íbúa og umhverfi

Ferðaþjónustan stendur á tímamótum og það skiptir máli hvaða stefna verður tekin af borgaryfirvöldum og borgarbúum. Vinstri hreyfingin – grænt framboð hefur skýra stefnu í málefnum ferðaþjónustu og er fyrsta stjórnmálaaflið á Íslandi, sem hefur mótað sér slíka stefnu, enda er um að ræða aðal gjaldeyristekjulind okkar Íslendinga.

Ferðaþjónustan bjargaði okkur algerlega eftir hrun, og við verðum að tryggja að þessi mikilvæga atvinnugrein geti blómstrað áfram. Mikilvægt er að borgaryfirvöld eigi frumkvæði að því að móta stefnuna í raunverulegri samvinnu við borgarbúa.



Reykvíkingar njóti vafans

Reykjavík er segull í ferðaþjónustu, enda koma þar við til lengri eða skemmri tíma nær allir ferðamenn sem á annað borð koma til landsins. Reykjavík er því ekki aðeins áfangastaður heldur einnig viðkomustaður; hvort tveggja verður að hafa í huga þegar mótuð er stefna í ferðaþjónustu fyrir borgina.

En Reykjavík er líka heimabyggð og menning borgarinnar, þ.e. mannlíf hennar, íbúarnir eru „auðlind“ í ferðaþjónustu. Íbúarnir eru hin iðandi kös fjölbreytileikans, sögunnar og menningarinnar sem fanga auga og aðdáun hinna erlendu gesta. Ferðaþjónustan getur aldrei þrifist í ósætti við íbúa. Skynsamleg stefna í málefnum ferðaþjónustunnar tekur mið af þessu. Aðgerða er þörf víða, til dæmis verður að herða eftirlit með heimagistingu á vegum Airbnb.

Það skiptir höfuðmáli að öll uppbygging innviða fyrir ferðaþjónustu gerist í sátt og samlyndi við íbúa borgarinnar og umhverfi hennar.

Flestir ferðamenn koma til Íslands til að njóta náttúrunnar. Hér hefur Reykjavík upp á gríðarmikið að bjóða. Það verður að gæta þess að borgin í heild og einstök svæði innan hennar hljóti ekki þau örlög að spillast af ofnýtingu eða aðgæsluleysi. Við eigum t.d. tafarlaust að friðlýsa lundabyggðina í Akurey, og borgin á að stofna borgarfriðland sem teygir sig sig frá heiðum út á sundin, fjölga upplýsingaskiltum og vinna með leiðsögumönnum að því að fræða ferðamenn um umgengni við íslenska náttúru.

Íbúar borgarinnar og náttúra hennar á að njóta vafans þegar þolmörk eru skilgreind.



Samvinna við ferðaþjónustuna

Reykjavíkurborg á að leggja áherslu á að leiðsögumenn auki þekkingu sína á borginni. Borgarsöfnin geta t.d. skipulagt námskeið fyrir leiðsögumenn í samvinnu við ferðaþjónustuna um menningu og sögu borgarinnar, vistkerfi hennar og náttúru. Leiðsögn um borgina á að vera hluti af þeirri starfsemi borgarinnar sem miðlar sögu hennar og túlkar hana útfrá sjónarhóli borgarbúa, náttúru hennar og vistkerfi.

Reykjavík á að vera mannvæn borg sem gott er að búa í og heimsækja. Markviss stefna í málefnum ferðaþjónustu auðgar borgina og gerir hana mannvænlegri.

Reykjavík á að vera áfangastaður fyrir alla - Ferðaþjónusta í sátt við borgarbúa og náttúru!

Hreindís Ylva Garðarsdóttir Hólm. Höfundur er flugfreyja og leikkona, og skipar 4 sæti á framboðslista VG fyrir borgarstjórnarkosningarnar.

Jakob S. Jónsson. Höfundur er leiðsögumaður og skipar 29 sæti á framboðslista VG.




Skoðun

Skoðun

Nálgunarbann

Fjölnir Sæmundsson,Sonja Ýr Þorbergsdóttir skrifar

Sjá meira


×